Dýraverndarsamband Íslands
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Ársskýrslur og aðalfundir
    • Dýraverndarinn
  • Starfsemi DÍS
    • Umsagnir DÍS
    • Bætt dýravelferð - skýrsla
  • Þarftu aðstoð vegna dýrs?
  • Styðja félagið
    • Gerast félagi
    • Dýraverndarar
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Ársskýrslur og aðalfundir
    • Dýraverndarinn
  • Starfsemi DÍS
    • Umsagnir DÍS
    • Bætt dýravelferð - skýrsla
  • Þarftu aðstoð vegna dýrs?
  • Styðja félagið
    • Gerast félagi
    • Dýraverndarar

Umsagnir Dýraverndarsambandsins vegna reglugerða um velferð dýra

30/5/2014

 
Dýraverndarsambandið tilnefndi einn fulltrúa í hvern hinna sjö hópa sem unnu að reglugerðum fyrir eftirfarandi flokka dýra: hestar, nautgripir, sauð-og geitfé, svín, alifuglar, loðdýr og loks gæludýr. 

Drögin að reglugerðunum voru síðan send úr ráðuneytinu til DÍS og óskað umsagna. Umsagnirnar er að finna hér fyrir neðan, hver á sínum hlekk. Þeir sem vilja kynna sér drögin að reglugerðunum eins og þau voru send til DÍS þurfa að hafa samband við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og óska eftir þeim þar. 
 
Það er von DÍS að reglugerðirnar bæti meðhöndlun og aðstæður dýra og skilgreini betur ábyrgð þeirra sem halda þau. Jafnframt eru reglugerðir sem þessar háðar skilvirku eftirliti með velferð dýra og skýru umboði til að grípa inn í aðstæður þegar þörf gerist. 
 
DÍS sendi einnig umsögn um flutning á búfé og er hana að finna í hlekk hér að neðan. Í ljósi þess að landbúnaðarráðherra hefur gefið jákvæða umsögn um hugmyndir sláturleyfishafa um að fækka stórgripasláturhúsum á landinu úr níu í þrjú, vill DÍS gera sérstakan fyrirvara gagnvart velferð gripa við langa flutninga og einnig við útfærslu svokallaðra söfnunarstöðva. Reynslan af slíkum söfnunarstöðvum er ekki góð t.d. í Evrópu. Við teljum að fækkun sláturhúsa og notkun á söfnunarstöðvum leiði til meira álags fyrir búfé og því verri kost. 
 
Hlekkir: 
Umsögn um reglugerð vegna hesta 
Umsögn um reglugerð vegna nautgripa 
Umsögn um reglugerð vegna sauð-og geitfjár 
Umsögn um reglugerð vegna svína 
Umsögn um reglugerð vegna alifugla 
Umsögn um reglugerð vegna loðdýra 
Umsögn um reglugerð vegna gæludýra
Umsögn um reglugerð vegna flutnings búfjár 


Comments are closed.
DÝRAVERNDARSAMBAND ÍSLANDS   |   GRENSÁSVEGI 8, 108 REYKJAVÍK  |  DYRAVERND@DYRAVERND.IS
Picture
Picture