Dýraverndarsamband Íslands tekur undir orð Sigurborgar Daðadóttur yfirdýralæknis sem hefur áhyggjur af velferð hrossa vegna of mikillar og óþarfrar tannröspunar.
Mikið hefur verið rætt um tannröspun á íslenska hestinum og sérstaklega í kjölfar úttektar dýralæknis á ástandi munnhols hesta, eftir síðasta landsmóts hestamanna. Í sjónvarpsþættinum Landanum voru nú í mars 2013 sýndar lagfæringar á biti hrossa, þar sem meðal annars mátti sjá slípað bit framtanna í hesti. Í fréttatilkynningu frá yfirdýralækni segir að sjaldgæft sé að leiðrétta þurfi bit framtanna. Þar er áréttað að fyrir öllum inngripum í líkama dýra þurfi að liggja læknisfræðilegar ástæður. Meðhöndlun einstakra tanna geti verið nauðsynleg en þurfi að útfæra þannig að sem minnst gangi á tönnina. Nánari fróðleik og leiðbeiningar um tannröspun má finna inni á heimasíðu Matvælastofnunnar: http://mast.is/dyraheilbrigdi/dyravelferd/tannrospun-hrossa/ Þar kemur meðal annars fram að það sé algengur misskilningur að tennur hesta vaxi alla ævi. Svo er ekki. Tannröspun er málefni sem er mikið deilt um nú um mundir. Dýraverndarsamband Íslands áréttar að hestarnir ættu alltaf að njóta vafans við alla meðhöndlun og að dýravelferðarsjónarmið ættu ætíð að liggja til grundvallar. Við teljum að tannröspun eigi eingöngu að framkvæma vegna læknisfræðilegra ástæðna en engan veginn sem einhliða lausn á svörun hests við taumhendi eða við beislisbúnaði. Það ættu allir hestamenn og aðrir dýravinir að geta sammælst um. Comments are closed.
|