Dýraverndarsamband Íslands
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Ársskýrslur og aðalfundir
    • Dýraverndarinn
  • Starfsemi DÍS
    • Umsagnir DÍS
    • Bætt dýravelferð - skýrsla
  • Þarftu aðstoð vegna dýrs?
  • Styðja félagið
    • Gerast félagi
    • Dýraverndarar
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Ársskýrslur og aðalfundir
    • Dýraverndarinn
  • Starfsemi DÍS
    • Umsagnir DÍS
    • Bætt dýravelferð - skýrsla
  • Þarftu aðstoð vegna dýrs?
  • Styðja félagið
    • Gerast félagi
    • Dýraverndarar

Staðan í Covid-ástandi, stjórn og starfsemi DÍS

13/1/2022

 
Picture


Staðan nú: Því  miður verður  ekki unnt að halda aðalfund hjá félaginu fyrr en ástæður leyfa vegna covid-19. Við bindum nú vonir við að það geti orðið fyrir vorið miðað við síðustu upplýsingar frá sóttvarnaryfirvöldum.   Síðast var haldinn aðalfundur árið 2018,  aðalfundurinn  féll niður árið 2019 vegna flutninga í annað húsnæði og misstum við fastan starfsmann okkar á sama tíma er hún varð frá að hverfa vegna veikinda. Hefur covid-ástandið og afleidd staða síðan þá hindrað að hægt sé að kalla fólk saman til aðalfundar.  Slík hlé á aðalfundum eru ekki óþekkt í yfir aldalangri sögu félagsins, en ýmsar aðstæður geta komið upp sem gera að verkum að þeir falli niður og síðast varð slíkt hlé frá 2010 til 2012 í tíð þáverandi stjórnar. Starfsemi DÍS hefur  verið  að einhverju leyti skert í þessu covid-ástandi, til dæmis hvað það varðar að halda félagafundi, opin hús eða málþing o.fl. Stjórn DÍS starfar þó áfram  og heldur á málefnum félagsins. Stjórnin styðst við verklagsreglur sem hafa verið í gildi árum saman og því er engin breyting á starfsemi félagsins þótt aðalfundir hafi fallið niður. Við hörmum þetta ástand og bíðum þess að gott færi gefist til að halda aðalfund. 

Almennar upplýsingar: Starfsemi DÍS byggir á því að stjórn félagsins er falið að annast stefnu- og málefnavinnu félagsins. Stjórnin má  ráða starfsmann til að sjá um daglegan rekstur og praktísk mál. Stjórnarmenn þiggja ekki og hafa  ekki þegið laun fyrir stjórnarstörf í tíð núverandi stjórnarmanna sem hafa lengst starfað allt frá árinu 2012. Greitt er fyrir vinnu sem snýr að rekstri félagsins og praktískum málum. Sem stendur er félagið ekki með neinn fastan starfsmann   og í þeirri stöðu einskorðast starfsemi félagsins mikið til við ólaunuð störf stjórnar sem er að sinna dýravelferðarmálum á félagslegum grunni og  stefnu félagsins. Stundum eru fólk fengið tímabundið til starfa til dæmis til þrifa, viðgerða eða bókhaldsvinnu o.fl.þ.h. og þá greitt fyrir þau störf. Stundum  hafa stjórnarmenn að ósk stjórnar og undir umsjón stjórnar tekið að sér einstök slík störf og er það þá flokkað sem vinna fyrir félagið en ekki ólaunuð sjálfboðvinna eins og við stjórnarstörfin. Það er framtíðarstefna félagsins að hafa fastan starfskraft. Því miður verður ekki hægt að halda viðburði eða setja stefnu á málþing eða opin hús fyrr  en covid-ástandið er að baki. 

Formaður félagsins er talsmaður stjórnarinnar og greinir frá stefnu félagsins eins og hún er samþykkt á stjórnarfundum hverju sinni, en öll stjórnin kemur að þeirri stefnuvinnu. Ekkert efni er sent frá félaginu sem ekki byggir á slíkri sameiginlegri vinnu eða fyrri samþykktum. Vinnureglan er að öll stjórn eru boðuð á fund og stjórnin vinnur efnið saman þar til allir stjórnarmenn eru sáttir við niðurstöðu. Stjórnarfólk DÍS er staðsett víða um landið og tveir erlendis en fundir eru haldnir með fjarfundarbúnaði svo allir geti mætt. Hefur samstarfið gengið mjög vel hjá þessari stjórn sem er almennt samstíga. Stjórnin þarf ætíð að feta þrönga slóð þegar kemur að   því að greiða fyrir vinnu hjá félagi sem nýtur engra styrkja. Hvorki félagið sem slíkt né stjórn þess eða einstakir stjórnarmenn né formaður njóta neinna fastra eða tilfallandi styrkja í neinni mynd,  hvorki  frá    ríki, sveitafélögum, öðrum opinberum stofnunum, ekki heldur frá fyrirtækjum né öðrum  félagasamtökum eða hagsmunasamtökum. Engin dæmi er að finna um slíka eða aðra álíka styrki eða framlag til DÍS í sögu þessarar stjórnar.  Eina  innkoma félagsins er er því félagsgjöld og svo 1000-3000 króna mánaðarlegir styrkir frá nokkrum einstaklingum. Innkoman  þarf að standa undir rekstri á húsnæði félagsins og ýmsum gjöldum, rekstri heimasíðu o.fl.  og svo  því að ráða fólk í  einstök verkefni og vinnu fyrir félagið að framfylgd stefnu þess. 

​Félagið er yfir aldargamalt og hefur staðið af sér allskyns tíma í sögu Íslands, engin ástæða er til að ætla annað en að það starfi áfram eðlilega eftir að covid-ástandinu lýkur.  Við vonum að fólk geti sýnt þessu skilning og eins og áður segir þá starfar stjórnin áfram og heldur  við stýrið á siglingu félagsins. 

Reikningar fyrir félagsgjöld verða  sendir út til félagsfólks DÍS þegar fyrir dyrum stendur að halda aðalfund.   Við vonum öll að þessu ástandi linni sem fyrst. 

Kær kveðja frá stjórn DÍS. 


Comments are closed.
DÝRAVERNDARSAMBAND ÍSLANDS   |   GRENSÁSVEGI 8, 108 REYKJAVÍK  |  DYRAVERND@DYRAVERND.IS
Picture
Picture