Ný stjórn Dýraverndarsambands Íslands
Ný stjórn DÍS var kjörin á aðalfundi í ágúst 2022:
Formaður: Linda Karen Gunnarsdóttir, ritari: Hrefna Sigurjónsdóttir, gjaldkeri: Marietta Maissen og þrír meðstjórnendur: Liselotte Widing, Sigursteinn Másson og Anna Berg.
Enginn fráfarandi stjórnarmanna gaf kost á sér til kjörs aftur og ekki bárust fleiri en eitt framboð í hvert sæti og því var nýja stjórnin sjálfkjörin með lófaklappi á aðalfundinum.
Fráfarandi stjórn óskar nýrri stjórn hjartanlega til hamingju með kjörið og óskar þeim gæfu og gengis í störfum sínum fyrir dýravelferð á Íslandi.
Með bestu kveðjum,
Hallgerður Hauksdóttir, Guðfinna Kristinsdóttir, Benedikt Þór Axelsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir og Sif Traustadóttir.
Til baka