Dýraverndarsambandið (DÍS) hvetur Grindvíkinga til að fara varlega í þeim hættulegu aðstæðum sem hafa skapast. DÍS vill jafnframt minna á gæludýrin stór sem smá og þann búfénað sem er á svæðinu, þau þurfa líka vernd. Fjöldahjálparstöðvar ættu einnig að taka á móti dýrum og einstaklingar hafa boðið fram aðstoð varðandi að hýsa dýr tímabundið - sjá nánar undir Hundasamfélagið á Facebook. DÍS áréttar að það þarf að flytja ÖLL dýr burt af svæðinu. Stjórn DÍS Comments are closed.
|