Fundað um dýravelferðarmál

Mynd tengist efni ekki beint.

24. nóvember 2023

DÍS fundaði nýverið annars  vegar með matvælaráðuneytinu og hins vegar Bændasamtökum Íslands um stöðuna í dýravelferðarmálum. 

​Eins og fram hefur komið sendi DÍS fyrirspurn á Matvælastofnun (MAST) þann 8. nóvember varðandi dýr í neyð í Borgarbyggð. Þar sem svör MAST bárust fyrst þann 15. nóvember og um var að ræða dýr í neyð ákvað DÍS í millitiðinni, áður en bar til nokkurra frekari tíðinda í málinu, að leita samráðs við matvælaráðuneyti og Bændasamtök Íslands.   Fundirnir voru haldnir til að ræða þá stöðu sem upp er komin í málefnum dýravelferðar og leita leiða til lausnar.

DÍS bindur vonir við úttekt Ríkisendurskoðunar á eftirliti MAST með velferð dýra. Sambandið er samhliða að vinna úttekt af reynslu af búfjáreftirliti MAST.

​Hægt er að senda ábendingar á abending@dyravernd.is.

Stjórn DÍS

Til baka

Previous
Previous

Dýr í neyð á Norðurlandi

Next
Next

Úttekt DÍS á umkvörtunum í garð MAST