Stjórn DÍS átti fund með Matvælastofnun (MAST) mánudaginn 22. maí vegna tveggja dýravelferðarmála sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu og skorts á viðbrögðum frá stofnuninni, sérstaklega hvað varðar að forða dýrum sem eru í neyð. Hér er verið að vísa í slæman aðbúnað sauðfjár á Höfða í Þverárhlíð og slæman aðbúnað hrossa í Arnarfirði. Áhersla var lögð á tafarlausar úrbætur og breytt verklag í eftirliti með velferð dýra. Á fundinum lýsti MAST yfir áhuga á að vinna að gerð fræðsluefnis í samvinnu við DÍS. Áætlaður er fundur í haust vegna þess. Í byrjun júní er áformaður annar fundur með stofnuninni um búfjáreftirlitið og áður framkomnar tillögur DÍS um uppstokkun á dýraeftirlitinu byggðar á ítarlegri úttekt DÍS. Því verður svo fylgt frekar eftir við Matvælaráðuneytið. Comments are closed.
|