Dýraverndarsamband Íslands
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Aðalfundir & ársskýrslur
    • Saga DÍS
    • Dýraverndarinn
    • ENGLISH
  • Starfsemi DÍS
    • Ályktanir
    • Umsagnir
    • Dýraverndari ársins
    • Bætt dýravelferð - skýrsla
  • Þarftu aðstoð vegna dýrs?
  • Styðja DÍS
    • Gerast félagi
    • Dýraverndarar
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Aðalfundir & ársskýrslur
    • Saga DÍS
    • Dýraverndarinn
    • ENGLISH
  • Starfsemi DÍS
    • Ályktanir
    • Umsagnir
    • Dýraverndari ársins
    • Bætt dýravelferð - skýrsla
  • Þarftu aðstoð vegna dýrs?
  • Styðja DÍS
    • Gerast félagi
    • Dýraverndarar

Almenn stefna og nálgun Dýraverndarsambands Íslands vegna dýrahalds

14/5/2017

 
Öll dýr hvort sem þau eru villt eða undir manna höndum eru undir áhrifavaldi mannsins eins og málum er skipað í dag. Grundvallarstefna Dýraverndarsambands Íslands er að stuðla að velferð dýra á Íslandi eftir bestu vitneskju um eðlislægt atferli og þarfir þeirra.
Hlutverk dýra sem menn halda eru misjöfn eftir því hvort um er að ræða gæludýr, búfé, keppnisdýr, sýningardýr o.s.frv. og dýr eru haldin á mismunandi máta. Við teljum raunhæfa nálgun besta miðað við núverandi forsendur við allt dýrahald, til að ná því markmiði að bæta aðbúnað og meðferð dýra svo þau séu haldin þannig að þau eigi góða ævi. Við vísum þar í réttindin fimm sem lágmarksviðmið, en þau eru tilgreind í fyrstu grein laga um velferð dýra 55/2013, sjá hér að neðan. Fagleg vinnubrögð við aflífun er hluti af vönduðu dýrahaldi. Jafnframt er nauðsynlegt að horfast í augu við og afleggja dýrahald í þeim tilfellum þegar ekki er unnt að halda dýrin þannig að þörfum þeirra verði mætt. Einkunnarorð DÍS eru tillitsemi, ábyrgð og virðing og er unnið samkvæmt þeim. Félagið vinnur að því að ná árangri við bætta dýravelferð í samvinnu við alla þá aðila sem að dýrum koma. Við tökum einungis afstöðu til dýrahalds á grundvelli velferðar dýranna.

Samþykkt á stjórnarfundi í febrúar 2017
Stjórn DÍS.


Lög um velferð dýra
 2013 nr. 55
 1. gr.  Markmið. 
 Markmið laga þessara er að stuðla að velferð dýra, þ.e. að þau séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur. Enn fremur er það markmið laganna að þau geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt. 




​.

Comments are closed.
DÝRAVERNDARSAMBAND ÍSLANDS   |   GRENSÁSVEGI 8, 108 REYKJAVÍK  |  DYRAVERND@DYRAVERND.IS