Stjórn DÍS hefur sent neðangreint bréf á Matvælastofnun (MAST) vegna alvarlegs ástands sauðfjár á bænum Höfða í Þverárhlíð sem og bréf til sveitarfélagsins Borgarbyggðar sem hefur þær skyldur að smala ágangsfé. Bréf stjórnar DÍS til Matvælastofnunar Bréf stjórnar DÍS til sveitarfélagsins Borgarbyggðar Fjölmiðlar hafa reglulega fjallað um vanhöld skepna á Höfða undanfarið ár og alvarleg vanhöld sauðfjár hafa ítrekað verið tilkynnt til yfirvalda í samræmi við tilkynningarskyldu almennings skv. 8. gr. laga um velferð dýra. Um er að ræða dýravelferðarmál sem á sér langa sögu og hefur ill meðferð dýra á þessum stað ítrekað komið á borð Matvælastofnunar (MAST), án þess að staða eða aðbúnaður dýranna breytist sjáanlega til hins betra. Málið er enn í ferli hjá MAST, sem fer með eftirlit með velferð dýra, en ljóst er málið þolir enga frekari bið. Féð býr enn í dag við mikil vanhöld og aðbúnaður þess er í engu samræmi við kröfur um aðbúnað sauðfjár sbr. reglugerð nr. 1066/2014 um velferð sauðfjár og geitfjár. Girðingar eru jafnframt ekki heldar á bænum og óborið og nýlega borið fé laust utan girðingar og án eftirlits eigenda, en eftirlit skal hafa með fé á burðartíma til að gæta að velferð og heilsu dýranna. Dýr eiga ekki að þjást á meðan mál eru í „ferli“. Ekkert dýr á að þjást. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands Comments are closed.
|