Danska sjónvarpið sýndi í vikunni þátt um svínakjötsiðnaðinn í Danmörku. Segja má að þarna hafi dyrum verið lokið upp sem alla jafna eru lokaðar. Dýraverndarsambandinu hafa borist talsverð viðbrögð við þættinum frá íslenskum dýravinum - og það enda þótt þátturinn sé á dönsku máli og ekkert kynntur hér á landi. Við getum strax verið fegin að vita að nýsett dýravelferðarlög okkar á Íslandi banna í dag geldingu og halaklippingu án deyfingar eins og hún er sýnd í þættinum, en myndin sýnir vel hvað grísir bjuggu við hérna áður og hvað það var sem Sif Traustadóttir dýralæknir skar upp herör gagnvart, þegar hún vakti athygli á þessu hér heima, þá vel falinni staðreynd. Í dag eiga dýrin að vera deyfð og fá verkjameðferð við slíkar aðgerðir. Dýraverndarsamband Íslands styður góðan hefðbundinn íslenskan fjölskyldubúskap þar sem vel er farið með dýr - og gerir skýran greinamun á honum og kjötframleiðslu á iðnaðarbúum. Á Íslandi er það helst í eggjaframleiðslu, alifuglaframleiðslu, loðdýraeldi og svínaeldi, sem pottur er brotinn, hvað velferð og líðan dýranna varðar. Oft heyrast þau rök að dýrin ,,þekki ekki annað" sem á slíkum búum eru alin. Má af því ráða að þá hljóti þetta að vera í lagi. Dýraverndarsamband Íslands telur að dýrum þurfi að sýna tillitsemi og umgangast þau af ábyrgð og virðingu sem skyni gæddar verur - en það verður seint reyndin við slíkan verksmiðjubúskap. Nýlegar umræður um aðstæður alifugla á íslenskum kjúklingabúum sýna þetta vel; enda fá hvorki fjölmiðlar né almenningur að kynna sér aðstæður þeirra fugla. Danski þátturinn birtir þann veruleika sem felst m.a. í því að um það bil 25.000 nýbornir grísir drepast daglega í Danmörku - athugið daglega - vegna aðstæðna sinna, fremur en nokkurs annars. Gylturnar geta meðal annars ekki sinnt þeim grísum sem of veikburða eru til að komast sjálfir á spena, þar eð þær eru lokaðar inni í búri, en þær sjá grísina samt vel þaðan sem þær liggja. Dýr á verksmiðjubúum koma aldrei út undir bert loft eða í náttúrulegt umhverfi. Hér má sjá þáttinn í danska sjónvarpinu, en linkurinn er virkur til 22. febrúar: þátturinn Dýraverndarsamband Íslands hefur sent RÚV ósk um að taka þáttinn til sýningar í íslensku sjónvarpi. DÍS Comments are closed.
|