Þann 20. apríl var aðalfundur DÍS haldinn í nýju húsnæði félagsins að Grensásvegi 12A í Reykjavík. Samkvæmt lögum félagsins voru venjuleg aðalfundarstörf á dagskrá eins og send voru með fundarboði. Á aðalfundinum fóru fram kosning til stjórnar, ársskýrsla og ársreikningar voru lesin og lögð fram til samþykktar. Í stjórn voru kjörin ný þau Róbert Helgason gjaldkeri og Anna Berg Samúelsdóttir meðstjórnandi. Fullan lista má sjá hér á síðunni undir ,,Um DÍS" . Einnig var kynnt stefnumótunarvinna um málefni dýra, breytingartillögur á lögum lagðar fyrir og félagsgjöld næsta árs ákveðin. Að lokum var hinn hefðbundni lokaliður önnur mál. Ársskýrslan og aðalfundargerð er birt hér á heimasíðunni. Mikið starf er framundan hjá DÍS, sem vinnur að málefnum allra dýra á Íslandi, jafnt villtra dýra, búfjár og gæludýra. Fyrirhugað er að halda félagafund til að móta stefnu í þessum flokkum með félögum í DÍS og verður það kynnt nánar hér á heimasíðunni. Við hvetjum alla sem láta sig málefni dýra varða til að ganga í Dýraverndarsambandið, en til þess þarf aðeins að senda okkur tölvupóst með tilkynningu á [email protected]. Comments are closed.
|