Aðalfundur Dýraverndarsambands Íslands (DÍS) verður haldinn fimmtudaginn 25. maí kl 17-19:00 í húsnæði félagsins að Grensásvegi 8 (gengið inn að aftan og farið upp á 4 hæð m. lyftu), 108 Reykjavík. Húsið opnar 16:30. Ágúst Ólafur Ágústsson lög- og hagfræðingur mun kynna niðurstöður úttektarinnar sem hann vann fyrir DÍS og flutti á málþingi félagsins í mars, Bætt dýravelferð - staða og tillögur til úrbóta. Dýraverndari ársins Á aðalfundinum verður veitt viðurkenning DÍS, Dýraverndari ársins. Viðurkenningin er veitt fyrir ötult starf í þágu velferðar dýra. Dýraverndari ársins er Steinunn Árnadóttir sem með ötulu starfi sínu og hugrekki vakti athygli á vanrækslu dýra í Borgarbyggð sl. haust og nú nýverið á Vestfjörðum. Dagskrá aðalfundar DÍS 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Ársskýrsla stjórnar 3. Bætt dýravelferð - Ágúst Ólafur Ágústsson 4. Ársreikningar lagðir fram til samþykktar 5. Lagabreytingatillögur 6. Kaffihlé 7. Nýtt merki DÍS til samþykktar 8. Dýraverndari ársins 2022 9. Kjör formanns 10. Kjör annarra stjórnarmanna 11. Kjör skoðunarmanns reikninga úr hópi annarra en stjórnarmanna 12. Félagsgjöld og nýir félagar til samþykktar 13. Önnur mál Framboð til stjórnar Í stjórn DÍS sitja sex manns. Á aðalfundi 2023 verður kosið um formann til tveggja ára og tvo meðstjórnendur til tveggja ára. Samkvæmt lögum félagsins geta aðeins fullgildir félagar sótt aðalfund og gefið kost á sér til stjórnar, þ.e. hafa verið orðnir félagar í DÍS fyrir síðasta aðalfund árið 2022. Þeir félagar sem hafa ekki greitt félagsgjald fyrir árið 2022 verða að greiða fyrir aðalfund til að geta setið fundinn og verið kjörgengir. Framboð til stjórnar og lagabreytingartillögur þurfa að berast í síðasta lagi föstudaginn 19. maí á netfang félagsins [email protected] og verður kynnt á heimasíðu DÍS laugardaginn 20. maí. Framboðstilkynningu þarf að fylgja kynningartexti, 100-200 orð ásamt upplýsingum um til hvaða stjórnarsætis er boðið fram. Stjórn mun leggja fram lagabreytingartillögur, þær má kynna sér hér . Við hvetjum félaga til að mæta og hafa áhrif á störf DÍS. Stjórn DÍS Comments are closed.
|