UNDIRSKRIFTASÖFNUN
TIL STUÐNINGS VILLIKISUM Við biðjum alla sem láta sig varða velferð dýra að leggjast á eitt með þessari undirskriftasöfnun. Það þarf að vinna markvisst að velferð þeirra katta sem eiga ekki heimili og þurfa nauðsynlega hjálp. |
Aðalfundur Dýraverndarsambands Íslands verður haldinn í Norræna Húsinu laugardaginn 10. mars 2012 kl. 11:00
FRAMBOÐSFRESTUR: Miðvikudagur 7. mars 2012. Tekið við framboðskynningum sbr. aðalfundarboð dags. 22. febrúar sl. DAGSKRÁ AÐALFUNDAR: 1) Fundur settur og embættismenn kjörnir. 2) Greint frá starfseminni 2010-2012 (kynning á vefsíðunni skömmu fyrir fundinn). 3) Lagðir fram reikningar fyrir árin 2010 og 2011 og þeir bornir undir atkvæði. 4) Félagsgjald - tillaga frá stjórn lögð fram. 4) Drög að nýjum lögum kynnt og þau borin undir atkvæði. 5) Kosning stjórnar (átta stöður). 6) Önnur mál. 7) Fundi slitið. Athugið að aðeins skráðir félagar eru kjörgengir og hafa rétt til fundarsetu og atkvæðagreiðslu á aðalfundi. Miðað verður við félagaskrá eins og hún stendur 9. mars. Þeir sem óska eftir að gerast félagar fyrir aðalfund skulu senda tölvupóst í www.dyravernd.is eða gefa sig fram í símsvara/faxi Dýraverndarsambands Íslands 552-3044, sem allra fyrst, til þess að komast inn á félagaskrána í tæka tíð. Ef þörf krefur verða frekari upplýsingar birtar á vefsíðunni. Stjórnin Comments are closed.
|
DÝRAVERNDARSAMBAND ÍSLANDS | GRENSÁSVEGI 12A, 108 REYKJAVÍK | SÍMI 552-3044 | DYRAVERND@DYRAVERND.IS