DÍS
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Ársskýrslur og aðalfundir
    • Skrifstofa DÍS
  • Starfsemi DÍS
    • Almenn stefna og nálgun DÍS
    • Ályktanir og áskoranir
    • Umsagnir DÍS
  • Fróðleikur
    • Algengar spurningar
    • Dýraverndarinn
    • Ýmis fróðleikur
    • DÍS í fjölmiðlum
  • Önnur starfsemi tengd dýrum
    • Félög tengd dýravelferð
    • Félög tengd dýrahaldi
    • Stofnanir
    • Lög og reglugerðir
    • Dýr og dýravelferð á samfélagsmiðlum
  • Styðja við dýravernd
    • Gerast félagi
    • Gerast styrktarfélagi í DÍS
    • Styrkja félagið beint
    • Að tilkynna illa meðferð
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Ársskýrslur og aðalfundir
    • Skrifstofa DÍS
  • Starfsemi DÍS
    • Almenn stefna og nálgun DÍS
    • Ályktanir og áskoranir
    • Umsagnir DÍS
  • Fróðleikur
    • Algengar spurningar
    • Dýraverndarinn
    • Ýmis fróðleikur
    • DÍS í fjölmiðlum
  • Önnur starfsemi tengd dýrum
    • Félög tengd dýravelferð
    • Félög tengd dýrahaldi
    • Stofnanir
    • Lög og reglugerðir
    • Dýr og dýravelferð á samfélagsmiðlum
  • Styðja við dýravernd
    • Gerast félagi
    • Gerast styrktarfélagi í DÍS
    • Styrkja félagið beint
    • Að tilkynna illa meðferð

Dagskrá aðalfundar 2022

24/7/2022

 
+​Síðasti aðalfundur var 29 maí 2018
Hlé hefur verið á aðalfundum vegna aðstæðna, að mestu sem tengjast covid. 

Aðalfundur Dýraverndarsambands Íslands fyrir árin 2019-2020-2021 verður sunnudaginn 7 ágúst 2022 kl. 15:00 í húsnæði félagsins að Grensásvegi 8 (gengið inn að aftan og farið upp á 4 hæð). Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf:

1. Fundur settur
2. Fundarstjóri og ritari tilnefndur
3. Kynning framboða til stjórnar
4. Ársskýrsla  DÍS  og verkefni næsta árs
5. Reikningar síðasta árs lagðir fram til samþykktar
6. Kosning stjórnar
7. Lagabreytingar
8. Félagsgjöld og nýjir félagar til samþykktar
9. Önnur mál
 

Varðandi stjórnarkjör:
 Starfandi stjórn ætlar öll að hætta núna og gefur ekki kost á sér til starfa. Því er brýnt að framboð berist í  öll stjórnarsæti   fyrir aðalfundinn og sendast þau á tölvupóstfang félagsins dyravernd@dyravernd.is
Við hvetjum fólk til að bjóða sig fram til stjórnarstarfa en það er gaman og gefandi að vinna að málefnu dýra.


Árlega er kosið um ritara gjaldkera og meðstjórnanda eða um formann, og tvo meðstjórnendur, alltaf til tveggja ára. Á síðasta aðalfundi voru kosningar um formann og meðstjórnendur til tveggja ára. Því gildir á þessum aðalfundi að kosið verður um gjaldkera, ritara og meðstjórnanda til tveggja ára en formann og tvo meðstjórnendur til eins árs. Á aðalfundi 2023 kemst jafnvægi á kosningar er kosið verður til formanns og tveggja meðstjórnenda til tveggja ára. Og svo koll af kolli. 

Um rétt til setu í stjórn vísast til laga félagsins, sjá nánar á heimasíðu. Aðeins þeir félagar sem voru félagar fyrir í DÍS fyrir aðalfundinn 2018 eða bornir upp til samþykktar á þeim fundi mega sækja aðalfundinn núna / gefa kost á sér til stjórnarstarfa. Reikningar fyrir félagsgjöldum verða sendir til fullgildra félaga fyrir mánaðarmót. Það fólk sem hefur sótt um aðild síðan 29. maí 2018 verður borið upp til samþykktar í lok aðalfundarins núna og eftir að það er samþykkt verður það fullgildir félagar og öðlast rétt til að koma á aðalfund á næsta ári sem og að bjóða sig fram á næsta ári og fá reikning fyrir félagsgjöldum á næsta ári.  Ef þú telur þig vera fullgildan félaga í DÍS og hefur ekki fengið fundarboð með tölvupósti biðjum við þig að hafa samband við okkur á dyravernd@dyravernd.is svo hægt sé að uppfæra tengiliðaupplýsingar þínar. Einnig getur verið skynsamlegt að skoða í rusl hólf í tölvupóstum hjá sér. 

Framboð til stjórnar og tillögur  að  lagabreytingum þurfa að berast fyrir sunnudaginn 31. júlí næstkomandi og verður hvort tveggja kynnt á heimasíðu félagsins þriðjudaginn 2. ágúst. Þeir sem bjóða sig fram til stjórnarsetu sendi kynningartexta 100-200 orð til dyravernd@dyravernd.is ásamt framboði sínu, þ.e. í hvaða sæti er boðið fram og verður bæði kynnt á heimasíðunni. 
 
Allar upplýsingar varðandi fundinn og lög félagsins er   að  finna á heimasíðu félagsins www.dyravernd.is og á skrifstofu félagsins, en þér er hjartanlega velkomið að hafa samband og fá nánari upplýsingar. Síminn er 550 3044
 
Reykjavík, 24. júlí 2022

Stjórn    DÍS
Hallgerður Hauksdóttir  formaður 
Guðfinna Kristinsdóttir gjaldkeri 
Benedikt Þór Axelsson ritari
Sif Traustadóttir meðstjórnandi
Ragnheiður Gunnarsdóttir meðstjórnandi 

Comments are closed.
    Picture

    Að tilkynna illa meðferð 
    °  °  °  °  °  °  ° 

    Tímaritið
    Dýraverndarinn 

    Picture
    Hlekkir
    Dýraauðkenni
    Dýrahjálp Íslands
    Dýralæknafélag Íslands
    Kattavinafélag Íslands
    Kisukot
    Matvælastofnun
    Munnur hestsins
    Umhverfisstofnun
    Villikettir

    ​dyravernd@dyravernd.is


    S: 552-3044

    RSS Feed

DÝRAVERNDARSAMBAND ÍSLANDS   |   GRENSÁSVEGI 8, 4. HÆÐ (gengið inn að aftan),108 REYKJAVÍK   |   SÍMI  552-3044   |   DYRAVERND@DYRAVERND.IS