DÍS
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Ársskýrslur og aðalfundir
    • Skrifstofa DÍS
  • Starfsemi DÍS
    • Almenn stefna og nálgun DÍS
    • Ályktanir og áskoranir
    • Umsagnir DÍS
  • Fróðleikur
    • Algengar spurningar
    • Dýraverndarinn
    • Ýmis fróðleikur
    • DÍS í fjölmiðlum
  • Önnur starfsemi tengd dýrum
    • Félög tengd dýravelferð
    • Félög tengd dýrahaldi
    • Stofnanir
    • Lög og reglugerðir
    • Dýr og dýravelferð á samfélagsmiðlum
  • Styðja við dýravernd
    • Gerast félagi
    • Gerast styrktarfélagi í DÍS
    • Styrkja félagið beint
    • Að tilkynna illa meðferð
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Ársskýrslur og aðalfundir
    • Skrifstofa DÍS
  • Starfsemi DÍS
    • Almenn stefna og nálgun DÍS
    • Ályktanir og áskoranir
    • Umsagnir DÍS
  • Fróðleikur
    • Algengar spurningar
    • Dýraverndarinn
    • Ýmis fróðleikur
    • DÍS í fjölmiðlum
  • Önnur starfsemi tengd dýrum
    • Félög tengd dýravelferð
    • Félög tengd dýrahaldi
    • Stofnanir
    • Lög og reglugerðir
    • Dýr og dýravelferð á samfélagsmiðlum
  • Styðja við dýravernd
    • Gerast félagi
    • Gerast styrktarfélagi í DÍS
    • Styrkja félagið beint
    • Að tilkynna illa meðferð

Af iðnaði með svín og búskap með svín

24/1/2014

 
PictureHm.... þarf hér eitthvað að athuga mál betur?
Danska sjónvarpið sýndi í vikunni þátt um svínakjötsiðnaðinn í Danmörku. Segja má að þarna hafi dyrum verið lokið upp sem alla jafna eru lokaðar. 

Dýraverndarsambandinu hafa borist talsverð viðbrögð við þættinum frá íslenskum dýravinum - og það enda þótt þátturinn sé á dönsku máli og ekkert kynntur hér á landi. Við getum strax verið fegin að vita að nýsett dýravelferðarlög okkar á Íslandi banna í dag geldingu og halaklippingu án deyfingar eins og hún er sýnd í þættinum, en myndin sýnir vel hvað grísir bjuggu við hérna áður og hvað það var sem Sif Traustadóttir dýralæknir skar upp herör gagnvart, þegar hún vakti athygli á þessu hér heima, þá vel falinni staðreynd. Í dag eiga dýrin að vera deyfð og fá verkjameðferð við slíkar aðgerðir. 

Dýraverndarsamband Íslands styður góðan hefðbundinn íslenskan fjölskyldubúskap þar sem vel er farið með dýr - og gerir skýran greinamun á honum og kjötframleiðslu á iðnaðarbúum. Á Íslandi er það helst í eggjaframleiðslu, alifuglaframleiðslu, loðdýraeldi og svínaeldi, sem pottur er brotinn, hvað velferð og líðan dýranna varðar. Oft heyrast þau rök að dýrin ,,þekki ekki annað" sem á slíkum búum eru alin. Má af því ráða að þá hljóti þetta að vera í lagi.

Dýraverndarsamband Íslands telur að dýrum þurfi að sýna tillitsemi og umgangast þau af ábyrgð  og virðingu sem skyni gæddar verur  - en það verður seint reyndin við slíkan verksmiðjubúskap. Nýlegar umræður um aðstæður alifugla á íslenskum kjúklingabúum sýna þetta vel; enda fá hvorki fjölmiðlar né almenningur að kynna sér aðstæður þeirra fugla.

Danski þátturinn birtir þann veruleika sem felst m.a. í því að um það bil 25.000 nýbornir grísir drepast daglega í Danmörku - athugið daglega - vegna aðstæðna sinna, fremur en nokkurs annars. Gylturnar geta meðal annars ekki sinnt þeim grísum sem of veikburða eru til að komast sjálfir á spena, þar eð þær eru lokaðar inni í búri, en þær sjá grísina samt vel þaðan sem þær liggja.

Dýr á verksmiðjubúum koma aldrei út undir bert loft eða í náttúrulegt umhverfi. 

Hér má sjá þáttinn í danska sjónvarpinu, en linkurinn er virkur til 22. febrúar: þátturinn

Dýraverndarsamband Íslands hefur sent RÚV ósk um að taka þáttinn til sýningar í íslensku sjónvarpi. 

DÍS


Comments are closed.
    Picture

    Að tilkynna illa meðferð 
    °  °  °  °  °  °  ° 

    Tímaritið
    Dýraverndarinn 

    Picture
    Hlekkir
    Dýraauðkenni
    Dýrahjálp Íslands
    Dýralæknafélag Íslands
    Kattavinafélag Íslands
    Kisukot
    Matvælastofnun
    Munnur hestsins
    Umhverfisstofnun
    Villikettir

    ​dyravernd@dyravernd.is


    S: 552-3044

    RSS Feed

DÝRAVERNDARSAMBAND ÍSLANDS   |   GRENSÁSVEGI 8, 4. HÆÐ (gengið inn að aftan),108 REYKJAVÍK   |   SÍMI  552-3044   |   DYRAVERND@DYRAVERND.IS