Dýraverndari ársins 2015
Sigríður Björnsdóttir
Sem Dýraverndari ársins er valin Sigríður Björnsdóttir fyrir ötula vinnu í þágu velferðar hesta undanfarin ár. Hún hefur beitt sér fyrir almennri velferð hesta, m.a. með því að vinna gegn óhóflegri tannröspun og tannslípun hesta sem sýnt hefur verið fram á að sé óþörf og geti valdið þeim viðvarandi tannverk. Einnig hefur hún unnið að rannsóknum sem sýna fram á arfgengi sársaukafullrar liðakölkunar í afturfótum hesta (spatt), sem í kjölfarið hefur verið reynt að koma í veg fyrir við ræktun íslenska hestsins.
Jafnframt hefur Sigríður sýnt fram á að notkun ákveðinna beislisméla valdi beinhimnubólgu með þrýstingi á kjálkabein hrossa og hafa þau mél nú verið bönnuð við keppni og sýningar á íslenskum hestum vegna dýravelferðarsjónarmiða.
Dýraverndarsambandið telur að vinna Sigríðar í þágu hesta hafi ótvírætt bætt velferð þeirra og framtíð og vill veita henni viðurkenningu fyrir hennar starf.
Til baka