DÍS
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Ársskýrslur og aðalfundir
    • Skrifstofa DÍS
  • Starfsemi DÍS
    • Almenn stefna og nálgun DÍS
    • Ályktanir og áskoranir
    • Umsagnir DÍS
  • Fróðleikur
    • Algengar spurningar
    • Dýraverndarinn
    • Ýmis fróðleikur
    • DÍS í fjölmiðlum
  • Önnur starfsemi tengd dýrum
    • Félög tengd dýravelferð
    • Félög tengd dýrahaldi
    • Stofnanir
    • Lög og reglugerðir
    • Dýr og dýravelferð á samfélagsmiðlum
  • Styðja við dýravernd
    • Gerast félagi
    • Gerast styrktarfélagi í DÍS
    • Styrkja félagið beint
    • Að tilkynna illa meðferð
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Ársskýrslur og aðalfundir
    • Skrifstofa DÍS
  • Starfsemi DÍS
    • Almenn stefna og nálgun DÍS
    • Ályktanir og áskoranir
    • Umsagnir DÍS
  • Fróðleikur
    • Algengar spurningar
    • Dýraverndarinn
    • Ýmis fróðleikur
    • DÍS í fjölmiðlum
  • Önnur starfsemi tengd dýrum
    • Félög tengd dýravelferð
    • Félög tengd dýrahaldi
    • Stofnanir
    • Lög og reglugerðir
    • Dýr og dýravelferð á samfélagsmiðlum
  • Styðja við dýravernd
    • Gerast félagi
    • Gerast styrktarfélagi í DÍS
    • Styrkja félagið beint
    • Að tilkynna illa meðferð

Saga Dýraverndarsambands Íslands

21/7/2014

1 Comment

 
Picture
Stiklað á stóru í 100 ára sögu félagsins

Árið 1885 kom út bókin Dýravinurinn og var helguð dýravernd. Formálann skrifaði Tryggvi Gunnarsson sem var hugsjónamaður mikill í þágu dýravelferðar. 

Þjóðvinafélagið gaf eftir það Dýravininn út undir ritstjórn Tryggva, að jafnaði annað hvert ár í hálfan annan áratug. 

Ritið hefur vafalaust haft áhrif á hugsanagang fólks á þessum tíma gagnvart dýrunum.

Það var árið 1914 sem félagskapur var stofnaður um dýravelferð. Fyrir þrautseigju Ingunnar Einarsdóttur, húsfreyju á Bjarmastöðum, var Dýraverndunarfélag Íslands stofnað þann 13. júlí 1914. Á fyrsta aðalfundi félagsins var ákveðið að það hlyti nafnið Dýraverndunarfélag Íslands. Fyrsti formaður þess var Tryggvi Gunnarsson, sem hafði haldið kyndlinum á lofti í þrjá áratugi með ritinu Dýravininum. Hann lést tveimur árum síðar, 82 ára að aldri og ánafnaði félaginu nær allar eigur sínar. Ingunn var kosin meðstjórnandi á fundinum og þrátt fyrir hennar háa aldur varð hún brátt lífið og sálin í öllum störfum félagsins, og átti frumkvæði að sumum stærstu og markverðustu framkvæmdum þess.

Tímaritið Dýraverndarinn

Þegar þarna var komið hafði útgáfu á Dýravininum verið hætt og ekkert málgagn til sem beitti sér fyrir dýravelferðarmálum. Ingunn bar fram tillögu þess efnis að hið nýja félag kæmi á stofn blaði um dýravernd. Eftir hennar tillögu var blaðið nefnt Dýraverndarinn. Margir biðu spenntir eftir sérhverju blaði og lásu það með áfergju, varð það fljótt vinsælt meðal landsmanna. 


Tímaritið kom óslitið út til ársins 1983, eða í 69 ár, en þá varð hlé á útgáfunni. Félagið hóf útgáfu á blaðinu á ný árið 2012, fyrst á rafrænu formi og í tímaritsformi árið 2013. Félagar í Dýraverndarsambandinu fá tímaritið sent heim til sín árlega, enda innifalið í árgjaldinu. 


Lög um dýravernd 


Eitt brýnasta verkefni félagsins upphafi var að sett yrðu lög um dýravernd, en ekki voru til sérstök lög um dýr og dýrahald. Félagið vann tillögu að frumvarpi til laga sem lagt var fyrir Alþingi og framunnið þar. Voru hin nýju lög um dýravernd staðfest í nóvember árið 1915. Þetta gerðist fyrir atbeina félagsins fyrst og fremst og var mjög merkur áfangi. Þessi fyrstu heildarlög um dýravernd innihéldu 5 greinar en til gamans má geta að núgildandi lög eru 49 greinar. 

Félagið barðist fljótlega fyrir nýjum lögum um bættar aðferðir við aflífun dýra og einnig upp úr 1930 fyrir deyfingu og svæfingu við geldingar. Félagið kom reyndar að öllum breytingum um heildarlög vegna dýra árið 1957, 1994 og nú 2013. Segja má að saga dýraverndarlaga á Íslandi sé samofin sögu félagsins.

Félagið háði líka oft mikla baráttu til að lögin væru haldin og að eftirlit væri haft með því – og gerir raunar enn þann dag í dag. Kom það að frumvarpi til laga um fuglafriðun og fuglaveiðar sem varð að lögum um miðja öldina. Einnig fékk félagið því komið í lög að eyjan Eldey undan Reykjanesskaga var friðuð, en þar hafði verið gengið mjög á súlnabyggð.


Verndarstöðin í Tungu

Á aðalfundi félagsins árið 1917 kom hvatakona félagsins, Ingunn Einarsdóttir frá Bjarmalandi, með þá tillögu að félagið þyrfti að koma á stofn sjúkraskýli fyrir dýr og sömuleiðis húsnæði fyrir starfsemi félagsins. Keypt var jörðin Tunga sem stóð innan lands Reykjavíkur. Á Tungu voru hýstar skepnur aðkomumanna en mikill ferðamannastraumur var til höfuðstaðarins og fólk almennt ríðandi. Það var mikil vöntun á hýsingu fyrir hross, en algengt var að þau væru látin hírast í portum hvernig sem viðraði og oft mikil vandræði að útvega þeim fóður og húsaskjól. Vanhirt dýr voru einnig tekin inn til hirðingar. Segja má að Tunga hafi verið fyrsti vísir að dýraathvarfi á Íslandi, en var hún jafnan kölluð Verndarstöðin. Árið 1931 hýsti verndarstöðin rúmlega 4000 hross, 409 nautgripi, 1800 kindur og 60 svín, talið í nóttum, með eða án gjafar. Það ár voru einnig geymdir 80 hundar og 90 kettir og 211 alifuglar. 

Eftir 1930 tók rekstur Tungu að dala vegna breyttra samgangna, færri sóttu í hýsingu fyrir ferðahesta sem var rekstrargrundvöllur stöðvarinnar. Var ákveðið að breyta húsakynnum stöðvarinnar og varð þá til vísir að fyrsta dýraspítalanum hérlendis, en í húsinu var innréttaður sérstakur sjúkraklefi þar sem hægt var að sinna bæði smáum og stórum skepnum. 

Tunga var rekin til ársins 1937. Þá voru bifreiðar farnar að taka alveg við af hrossunum hvað samgöngur og vöruflutninga varðaði. Var því ákveðið að selja eignina sem var komin í rekstrarörðugleika, en ekki var heldur haldið nógu vel utan um reksturinn síðustu árin sem sýnir hversu áríðandi er að vanda til verka í slíku félagsstarfi. Mikil eftirsjá er að þessari eign, sem var um 10 hektarar að stærð innan Reykjavíkur. 


Nafnabreytingar


Upp úr 1950 höfðu verið stofnuð fleiri félög um dýravernd víða um landið. Miklar vangaveltur hófust um stofnun nýs félags sem yrði eins og regnhlífarsamtök fyrir þau dýraverndarfélög sem þá höfðu verið stofnuð. Jafnframt töldu menn að þörf væri fyrir sérstakt félag fyrir Reykjavík. Ákveðið var með ákvörðun aðalfundar árið 1959 að stofna tvö félög út frá Dýraverndunarfélagi Íslands sem fengu nöfnin Samband Dýraverndunarfélaga Íslands (SDÍ) og Dýraverndunarfélag Reykjavíkur (DR). Eignum, skyldum og ábyrgð var skipt á milli félaganna. Þannig fékk SDÍ tímaritið Dýraverndarann og umsjón með málefnum alls landsins og jafnframt aðildarfélaga, en DR átti að sinna sérstaklega málefnum í höfuðstaðnum. Aðildarfélög SDÍ voru á þessum tíma dýraverndarfélög í Garðshreppi, Akureyri, Hafnarfirði, Sauðárkróki og Reykjavík, en voru á ýmsum tímum ýmist fleiri eða færri. 

Þar sem ekki var talið framkvæmanlegt með góðu móti að breyta nafni Dýraverndunarfélags Íslands, sem m.a. var fyrir í texta laga um dýravernd og einnig í texta laga um fuglaveiðar, var ákveðið að Samband Dýraverndunarfélaga Íslands (SDÍ) og Dýraverndunarsamband Íslands (DÍ) skyldi vera eitt hið sama. Dýraverndunarfélagi Íslands var því aldrei slitið, en starfsemi þess og eignir falið tveim félögum, sem héldu áfram að vinna að málefnum þess. 

SDÍ/DÍ reyndi að efla dýraverndarstarfið um landið með því að fá trúnaðarmenn í flest pláss, ef dýraverndarfélag var ekki starfandi þar fyrir. En staðbundin dýraverndarfélög áttu erfitt uppdráttar og dóu loks út. Árið 1997 var DÍ sameinað á ný, en SDÍ og DR samþykktu bæði á aðalfundi að svo skyldi vera. Engin formleg aðildarfélög starfa sem slík í dag, enda ekki sama þörf á því og var, en upplýsingar geta borist manna á milli á örskotsstund sem áður gat tekið marga daga. Dýraverndarsamband Íslands (Dýraverndunarfélag Íslands) starfar í dag á ný sem eitt félag fyrir allt landið, eins og til var stofnað árið 1914. Ný skammstöfun var tekin upp fyrir félagið, en Félag dýralækna hefur notað skammstöfunina DÍ um langa hríð, var því ákveðið að skammstöfun okkar yrði DÍS. 


Helstu mál
efni

Dýraverndunarnefnd ríkisins, sem var forveri Dýraverndarráðs og var ráðherrum til ráðgjafar um málefni dýra, tók til starfa upp úr miðri síðustu öld. DÍS hefur ætíð átt fulltrúa í nefndinni. Í dag heitir nefndin Fagráð um velferð dýra samkvæmt nýjum lögum um dýravelferð . 

Félagið vann að úrbótum til að koma í veg fyrir óhreinkun sjávar af völdum olíu, sem skaðaði dýralíf. Það lagði fram mörg kærumál gagnvart mönnum er uppvísir höfðu verið að því að halda horuð dýr eða að annari illri meðferð á dýrum. Mikið baráttumál var einnig aðbúnaður og meðferð hrossa við útflutning.

Af öðrum stórum málum má nefna Sædýrasafnið í Hafnarfirði sem starfaði á árunum 1969-1987. Félagið hafði ætíð miklar áhyggjur af aðbúnaði dýra þar. Sannarlega er það safn barn síns tíma. 

Ormahreinsanir og lúsahreinsanir hunda voru hér áður stundum framkvæmdar þannig að hundarnir gátu verið nær dauða en lífi við aðfarirnar. Margir hundaeigendur tóku mjög nærri sér að skila hundum til ,,hreinsunar“, sem var skylt að gera, en þetta hefur nú heldur betur lagast. Reyndar var mikið deilt um hundahald í þéttbýli, bæði innan og utan félagsins, en að halda hunda sem selskapsdýr þekktist varla þá. 

Einnig verður nefna hér Dýraspítala Watsons en þar rættist gamall draumur félagsins um almennilega aðstöðu til dýralækninga. Mark Watson dýralæknir gaf félaginu húsið, sem staðsett var í Víðidal í Reykjavík og nokkur lækningatæki að auki. Spítalinn var rekinn í samstarfi við m.a. Reykjavíkurborg, hestamannafélagið Fák, Hundavinafélag Íslands og fleiri. Aðstaðan var að lokum leigð út til dýralækna. Þegar Watson-húsið í Víðidal var selt fyrir nokkrum árum var það fé sem fyrir það fékkst notað til að kaupa núverandi húsnæði félagsins að Grensásvegi 12A. Hægt að fá húsnæði DÍS leigt gegn vægu verði fyrir atburði sem tengjast velferð og til vegsauka dýra.

Margt hefur nú lagast sem áður var með mun verra sniði og oft gleymist hvað mikill árangur hefur náðst í málefnum dýravelferðar. Sum mál verða þó alltaf á könnu félagsins, til dæmis horfellir og vanhirða á búfé, ill meðferð selskapsdýra eða tillitsleysi gagnvart umhverfi villtra dýra.

Það er von okkar að húsnæði DÍS megi verða miðstöð málefna dýra og lyftistöng fyrir þau – félagið styður alla góða og málefnalega viðleitni dýrum í hag.

DÍS
1 Comment
Kenneth link
19/5/2019 04:36:44 pm

I liked your blog, thanks for publishing this.

Reply



Leave a Reply.

    Picture

    Að tilkynna illa meðferð 
    °  °  °  °  °  °  ° 

    Tímaritið
    Dýraverndarinn 

    Picture
    Hlekkir
    Dýraauðkenni
    Dýrahjálp Íslands
    Dýralæknafélag Íslands
    Kattavinafélag Íslands
    Kisukot
    Matvælastofnun
    Munnur hestsins
    Umhverfisstofnun
    Villikettir

    ​dyravernd@dyravernd.is


    S: 552-3044

    RSS Feed

DÝRAVERNDARSAMBAND ÍSLANDS   |   GRENSÁSVEGI 8, 4. HÆÐ (gengið inn að aftan),108 REYKJAVÍK   |   SÍMI  552-3044   |   DYRAVERND@DYRAVERND.IS