Dýraverndari ársins 2022
Steinunn Árnadóttir
Steinunni Árnadóttur hlotnast nafnbótin Dýraverndari ársins 2022 fyrir einstakt hugrekki, seiglu og áræðni í dýravelferðarmálum síðasta árið. Með ötulu starfi sínu og hugrekki vakti Steinunn athygli á vanrækslu dýra í Borgarbyggð sl. haust og í vor og einnig á Vestfjörðum.
Hugrekki og áræðni Steinunnar í þeim málum sem hún hefur komið að er einstakt.
Seiglan, fylgja málunum eftir og hætta ekki fyrr en dýrum er komið í öruggt skjól, hún er eftirtektarverð.
Steinunn birti myndir af hrossum í miklum vanhöldum í Borgarbyggð síðasta sumar. Áður hafði hún reynt í marga mánuði að ná eyrum eftirlitsaðila, Matvælastofnunar (MAST), um ástand dýranna eða frá því snemma sl. vor.
Í margar vikur reyndi hún, án árangurs, að fá hrossin sett út á haga til bötunar og bættrar velferðar.
Hugrekki Steinunnar að bjarga dýrum í sárri neyð hefur haft smitandi áhrif á almenning
- að líta ekki undan þegar vart verður við illa meðferð dýra.
Í málinu í Borgarbyggð í haust var athygli vakin á því hvernig yfirvöld, MAST, lögreglan og matvælaráðuneytið ná ekki utan um málefni er varða dýravelferð. Svo slæleg voru vinnubrögð yfirvalda í málinu að Ríkisendurskoðun ákvað sl. haust að hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti MAST með velferð dýra.
Stjórn DÍS óskar Steinunni innilega til hamingju með viðurkenninguna, hún er sannarlega vel að henni komin!
Til baka