Stjórn DÍS hefur sent neðangreint bréf á Matvælastofnun (MAST) vegna alvarlegs ástands sauðfjár á bænum Höfða í Þverárhlíð sem og bréf til sveitarfélagsins Borgarbyggðar sem hefur þær skyldur að smala ágangsfé. Bréf stjórnar DÍS til Matvælastofnunar Bréf stjórnar DÍS til sveitarfélagsins Borgarbyggðar Fjölmiðlar hafa reglulega fjallað um vanhöld skepna á Höfða undanfarið ár og alvarleg vanhöld sauðfjár hafa ítrekað verið tilkynnt til yfirvalda í samræmi við tilkynningarskyldu almennings skv. 8. gr. laga um velferð dýra. Um er að ræða dýravelferðarmál sem á sér langa sögu og hefur ill meðferð dýra á þessum stað ítrekað komið á borð Matvælastofnunar (MAST), án þess að staða eða aðbúnaður dýranna breytist sjáanlega til hins betra. Málið er enn í ferli hjá MAST, sem fer með eftirlit með velferð dýra, en ljóst er málið þolir enga frekari bið. Féð býr enn í dag við mikil vanhöld og aðbúnaður þess er í engu samræmi við kröfur um aðbúnað sauðfjár sbr. reglugerð nr. 1066/2014 um velferð sauðfjár og geitfjár. Girðingar eru jafnframt ekki heldar á bænum og óborið og nýlega borið fé laust utan girðingar og án eftirlits eigenda, en eftirlit skal hafa með fé á burðartíma til að gæta að velferð og heilsu dýranna. Dýr eiga ekki að þjást á meðan mál eru í „ferli“. Ekkert dýr á að þjást. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands DÍS hefur hrundið af stað undirskriftasöfnun til að skora á stjórnvöld að bæta eftirlit með velferð dýra. Nauðsynlegt er að endurskoða lög og reglugerðir er varða velferð dýra sem fyrst og að stofnanir sinni lögbundnum skyldum sínum gagnvart dýrum. Of víða er illa búið að búfénaði á Íslandi og eftirlit yfirvalda í núverandi mynd veitir lítið aðhald. Þessu þarf að breyta. Dýr eiga ekki að þjást! Undirskriftalistinn verður afhentur forsætisráðuneytinu. Taktu þátt og skrifaðu undir hér. Samkvæmt áliti umboðsmanns hefur velferð dýra ekki nægilegt vægi til að hægt sé að rökstyðja frestun hvalveiða með nægilega skýrum hætti á grundvelli laga um hvalveiðar. Matvælaráðherra frestaði hvalveiðitímabili í júní sl. og tók þar með afstöðu með velferð dýra. Í ljósi skýrslu Matvælastofnunar, álits Fagráðs um velferð dýra og yfirlýsingu Dýralæknafélags Íslands bar ráðherra að bregðast við. Það stenst ekki nútímann ef lög eru ekki nógu skýr til að stjórnvöldum sé fært að grípa til viðeigandi ráðstafanna í þágu dýravelferðar. Þess vegna köllum við, undirrituð, eftir því að Alþingi breyti lögum á þann hátt að ráðherra hafi heimild til að grípa til viðeigandi ráðstafana komi í ljós að veiðarnar fara í bága við lög um velferð dýra. Lögin í landinu endurspegla siðferði okkar sem samfélags, til þess eru lögin gerð og hér er augljóslega misræmi milli siðferðislegra gilda meirihluta almennings og laga. Dýraverndarsamband Íslands Hvalavinir Landvernd Náttúruverndarsamtök Íslands Samtök grænkera á Íslandi Samtök um dýravelferð á Íslandi Ungir umhverfissinnar Dýraverndarsambandið hefur fengið staðfest að um 30 kindur séu innilokaðar í fjárhúsi í Grindavík nærri götunni Bakkalág. Einnig er sauðfé innilokað í fjárhúsi við Sjávarbraut og í fjárhúsum í Þórkötlustaðahverfi og hugsanlega víðar. Ekki er hægt að sækja dýrin við þær aðstæður sem nú eru í Grindavík. Engu að síður er nauðsynlegt að dýrunum sé hleypt út strax svo þau geti forðað sér úr þeim hættulegu aðstæðum sem nú eru á svæðinu. DÍS beinir því til almannavarna sem annarra ábyrgra aðila í þeim aðgerðum sem nú eru í Grindavík að reyna, ef þess gerist nokkur kostur, að koma þessum skepnum til bjargar. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands |