Nýlega kastað folald í október á Laugabóli. Ljósm. Steinunn Árnadóttir. Stjórn DÍS hefur sent neðangreint bréf til Matvælastofnunar (MAST) vegna áframhaldandi alvarlegs ástands og slæms aðbúnaðar hrossa á bænum Laugabóli í Arnarfirði. Erindi: Vanhöld dýra á bænum Laugabóli í Arnarfirði Dýraverndarsambandi Íslands hefur borist ábending um áframhaldandi alvarlegt ástand og slæman aðbúnað hrossa á bænum Laugabóli í Arnarfirði. Um er að ræða um 24 hross sem ganga um lítt eða ógirt svæði, þar af þrjá graðhesta og nýkastað folald. Á bænum eru um 6-7 hryssur komnar að köstun sem sýnir jafnframt alvarlegt skeytingarleysi af hálfu eiganda. Málið er ekki síður áríðandi vegna þess að veturinn er á næsta leiti og þarna eru hryssur komnar að köstun, sem er hættulegt fyrir líf og heilsu þeirra og folaldanna. DÍS átti fund með yfirstjórn MAST í vor þar sem fjallað var sérstaklega um mál hrossanna á Laugabóli. DÍS benti m.a. á að greinilegt væri að ekki væri farið eftir reglum um eftirlit með hrossunum, að graðhestar væru lausir á þessum stað og lýsti yfir áhyggjum af því að mertryppi sem þarna eru í hópnum, 2-3 vetra, myndu verða fyljaðar. Nú hefur sambandið fengið þær upplýsingar að þarna séu þrír graðhestar enn lausir í hrossahópnum. Á fundinum var jafnframt bent á af hálfu DÍS að tilkynnandi hafi haft beint samband símleiðis við dýraeftirlitsmann MAST í Norðvesturumdæmi vegna málsins, sem sagði við viðkomandi að hann gæti tekið eiganda hrossanna með sér vestur til að skoða málið. Þetta bendir til að viðkomandi dýraeftirlitsmaður eigi í vinasambandi við eiganda hrossanna, sem þá gerir þennan eftirlitsmann vanhæfan í málinu. DÍS óskar því eftir að óháður eftirlitsaðili fari á staðinn og skoði ástand og aðbúnað þessara hrossa. Dýraverndarsamband Íslands fer fram á tafarlausar aðgerðir til handa hrossunum á bænum Laugabóli og að velferð þeirra sé varin. Stjórn DÍS Stjórn Dýraverndarsambands íslands (DÍS) harmar að hvalveiðar skuli hefjast að nýju. Stjórnin áréttar þá afstöðu sína að brýnt sé, út frá dýravelferðarsjónarmiðum, að hvalveiðum við Ísland ljúki alfarið á þessu ári. Starfshópur matvælaráðherra komst í síðustu viku að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að útiloka að tillögur Hvals hf um betrumbætur á veiðiaðferðum gætu leitt til færri frávika. Í framhaldinu ákvað ráðherra að framlengja ekki frekar það veiðihlé sem hún setti á með reglugerð í júní en heimila þess í stað veiðarnar í september. DÍS telur engar líkur á því að breytingarnar hjá Hval hf dugi til að standa með viðunandi hætti að þessum veiðum út frá dýravelferð. Úr því sem komið er, er brýnt að eftirlitið með veiðunum í september verði ítarlegt og öflugt. Afar mikilvægt er að nýrri reglugerð ráðherra um hvalveiðar verði fylgt fast eftir og brugðist ákveðið við í samræmi við lög þegar hvalur deyr ekki samstundis við veiðar. Dýraverndarsamband Íslands skorar á ráðherra og ríkisstjórn, nú þegar veiðileyfi Hvals hf er að renna út, að sjá til þess að þetta verði allra síðasta árið þar sem hvalir þjást í viðskiptaskyni við Ísland. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands Komið hefur fram í fjölmiðlum að Matvælastofnun (MAST) hafi borist tilkynningar um að 8 fylfullar hryssur hafi drepist í tengslum við blóðtöku í fyrrasumar. Ástæða þessa er talin vera reynsluleysi þeirra erlendu dýralækna sem framkvæmdu blóðtökuna á vegum Ísteka ehf. Dýraverndarsambandi Íslands (DÍS) hefur borist áreiðanlegar upplýsingar um að mun fleiri hryssur hafi drepist í tengslum við blóðtöku í fyrra. Á að minnsta kosti 10 bæjum hafi ein hryssa eða fleiri drepist í tengslum við blóðtöku og á einum af þessum 10 bæjum fjórar hryssur. Dýraverndarsambandið hefur einnig fengið ábendingu um að hryssa hafi óvart verið stungin í gegnum barka af óreyndum dýralækni í fyrrasumar. Viðkomandi dýralæknir hafi ekki brugðist við með því að að aflífa hryssuna eins og skal gera skv. lögum 55/2013 um velferð dýra og reglugerð 900/2022 um blóðtöku úr fylfullum hryssum, heldur lá hún í allt að 10 mínútur meðan henni blæddi út. Um er að ræða alvarlegt dýraníð. Í sumar verða óreyndir dýralæknar að sinna blóðtökum á hryssunum sem eru flestar ekkert eða lítið tamdar. Verði mistök er mikil hætta á að það verði hryssu að aldurtila. Um er að ræða mjög óvenjulegar og oft erfiðar aðstæður og mikil hætta getur skapast fyrir hryssurnar séu dýralæknarnir óreyndir. Dýraverndarsamband Íslands hefur lagst alfarið gegn blóðtöku úr fylfullum hryssum af dýravelferðarástæðum (sjá nánar hér). Miðað við þær upplýsingar sem nú eru fyrir hendi fer Dýraverndarsamband Íslands fram á tafarlausa stöðvun á blóðtöku úr fylfullum hryssum og að öll þau tilvik þar sem hryssa drapst í tengslum við blóðtöku í fyrrasumar verði rannsökuð og viðbrögð við þeim í samræmi við lög. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands Stjórn DÍS hefur sent neðangreint bréf á Matvælastofnun (MAST) vegna alvarlegs ástands sauðfjár frá bænum Höfða í Þverárhlíð sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum í dag. DÍS hefur rætt aðbúnað og vanrækslu dýranna á þessum stað áður við MAST, með bréfaskriftum og á tveimur fundum með yfirstjórn MAST og með forstjóra. Málið er í ferli hjá stofnuninni og hefur DÍS beðið eftir aðgerðum en ekki er hægt að bíða lengur, það verður að verja velferð dýranna. Efni: Alvarleg vanhirða á sauðfé frá bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarbyggð Dýraverndarsamband Íslands hefur fengið nýjar upplýsingar um áframhaldandi alvarlegt ástand sauðfjár á bænum Höfða í Þverárhlíð. Upplýsingarnar varða fé sem er á útigangi í Norðurárdal í Borgarbyggð. Myndefnið sem fylgdi tilkynningunni sýnir fullorðnar ær í tvöföldum eða þreföldum reifum, sumar haltrandi (mögulega um að ræða fótbrot), kind með júgurbólgu og ómerkt lömb. Ástandið er grafalvarlegt, hér þarf (eins og DÍS hefur áður bent á) að bregðast skjótt við og verja velferð dýranna. Sveitarfélagið stefnir á að smala ágangsfénu og koma því í afrétt (sbr. fréttatilkynning frá sveitarfélaginu), en vert er að benda á að ekki er hægt að sleppa veiku, vanhirtu og ómerktu fé á afrétt, það stenst ekki lög um dýravelferð. MAST þarf að bregðast við vegna þessa ástands sem er með öllu óviðunandi og í ósamræmi við reglugerð nr. 1066/2014 um velferð sauðfjár og geitfjár. Dýr eiga ekki að þjást sbr. lög nr. 55/2013 um velferð dýra. Stjórn DÍS |