Um Dýraverndarsamband Íslands
Dýraverndarsamband Íslands (Dýraverndunarfélag Íslands), DÍS, var stofnað 13. júlí 1914.
Félagið er sameiginlegur vettvangur þeirra sem vilja stuðla að velferð dýra, villtra og taminna, búfjár og gæludýra. Það leggur áherslu á miðlun upplýsinga og fræðslu og lætur sig allt varða sem snertir meðferð dýra og velferð þeirra. Dýraverndarsamband Íslands eru frjáls og óháð samtök (NGO). Dýraverndarsambandið á fulltrúa í Fagráði um velferð dýra, er aðili að Norræna dýraverndarráðinu (Nordisk Dyrebeskyttelsesråd) og að Alþjóðasamtökum um verndun dýra (World Animal Protection). Sambandið er einnig aðili að Landvernd. |
Meginhlutverk Dýraverndarsambands Íslands samkvæmt lögum félagsins er:
- Að vinna að bættri velferð dýra, taka virkan þátt í umræðu um málefni þeirra á opinberum vettvangi og stuðla að málefnalegri umræðu um dýravelferð.
- Að standa vörð um lögvernd dýra og stuðla að góðri lagasetningu og reglubundnu opinberu eftirliti til verndar dýrum.
- Að beita sér fyrir fræðslu og upplýsingamiðlun um góða meðferð dýra og hvetja skóla, félagasamtök og einstaklinga til að efla velferð þeirra.