Ill meðferð dýra
Hvert á ég að leita aðstoðar?
Dýraverndarsamband Íslands fær oft fyrirspurnir frá fólki um land allt sem hefur orðið vart illrar meðferðar á dýrum, einkum gæludýrum og búfénaði. Stundum er um grun frekar en vissu að ræða. Samt sem áður þarf að sinna öllum slíkum málum og láta viðkomandi eftirlitsaðila eða lögreglu vita enda slíkt skylt, samkvæmt dýravelferðarlögum.
Í dýravelferðarlögum (55/2013) er kveðið á um hjálparskyldu okkar gagnvart dýrum í neyð. Okkur ber að veita sjúkum, særðum og bjargarlausum dýrum umönnun og aðstoð eftir föngum .
Dýraverndarsambandið vill gjarnan aðstoða fólk við að vinna úr málum þar sem velferð dýra er ógnað og leiðbeinir um leiðir til úrlausna, en félagið hefur ekki lagalega heimild til beinna afskipta, svo sem að fara heim til fólks eða taka frá því dýr. Það geta eftirlitsaðilar og lögregla aðeins gert.
Hér fyrir neðan eru algengum spurningum svarað varðandi dýr í neyð. Einnig má hafa samband við okkur á dyravernd@dyravernd.is
Skrifstofa DÍS er opin á mánudögum kl. 13-17. Þangað eru allir dýravinir velkomnir.
Símatími er á þessum sama tíma og síminn hjá okkur er 552-3044.

ég fann slasað dýr
.
ég hef grun um illa meðferð á dýri
Matvælastofnun (MAST)
Mast er sú ríkisstofnun sem hefur yfirumsjón með dýravelferðarmálum á Íslandi. MAST tekur við ábendingum hér um illa meðferð á dýrum.
Lögreglan
Stundum er nauðsynlegt að kalla strax á lögreglu, t.d. ef dýr hafa verið sköðuð eða þau lent í slysi og/eða talið er að um glæpsamlega meðferð sé að ræða. Þá er mikilvægt að gerð sé lögregluskýrsla sem nýtist ef kæra er lögð fram gegn aðila sem hefur orðið uppvís að slæmri meðferð dýrs eða dýra.

ég fann heimilislaust dýr eða lausan hund án eftirlits
.
dýrið mitt er týnt
ég þarf að finna heimili fyrir dýr
ég vil tilkynna ónæði vegna dýrahalds