Gerast styrktarfélagi
Öll starfsemi félagasamtaka byggir á stuðningi þeirra sem vilja leggja málefninu lið. Dýraverndarsamband Íslands þarf á stuðningi almennings að halda til þess að geta unnið að framgangi aukinnar dýravelferðar á Íslandi. Almenn félagsgjöld DÍS standa ekki undir þeirri starfsemi sem félagið stendur fyrir ef árangurinn á að vera sá sem við viljum ná fram. Til þess að tryggja að vinna okkar geti verið markviss og eftirfylgni góð þurfum við á styrktarfélögum að halda.
Með styrktarfélagsaðild getur þú valið hvort þú ert eingöngu styrktarfélagi eða gengur jafnframt í félagið. Þú velur einfaldlega þá upphæð sem þú vilt styrkja félagið um mánaðarlega, oft 1000-1500kr, og sendir okkur tölvupóst á dyravernd(hjá)dyravernd.is með upplýsingum um þig og við höfum svo samband við þig.
Kærar þakkir fyrir að láta þig varða velferð dýra á Íslandi.