Stærsta hestamót hér á landi, Landsmót hestamanna, hefst í dag. Gjarnan er talað um að Landsmót sé uppskeruhátíð unnenda íslenska hestsins þar sem hundruð knapa keppa og sýna hross. Mót af þessari stærðargráðu er vissulega ánægjulegt fyrir mótshaldara, keppendur og áhorfendur. Hinsvegar er mikilvægt að ræða velferð hrossa í keppni og sýningum enda snýst mótið fyrst og fremst um þau. Sársaukahegðun hrossa Í nýlegri rannsókn J.W. Christensen og fl. (2024) var hegðun hrossa í keppni hér á landi skoðuð með áherslu á merki um sársauka eða óþægindi. Rannsakendur notuðust við myndbandsupptökur. Niðurstöður sýndu að hegðun sem bendir til að hrossum líði illa sé þó nokkuð algeng í keppni, sérstaklega þegar riðið er tölt (T1) eða skeið. Dæmi um hegðun sem bendir til sársauka hjá hrossum eru m.a. taglsláttur, teygð efri vör, hrossið opnar munninn ítrekað svo sést í tennur, það hristir höfuðið og hækkar eða lækkar höfuð í reið til að komast undan taumhaldi knapa. Rannsakendur benda á að þetta þurfi að rannsaka frekar en niðurstöður séu í samræmi við aðrar sambærilegar rannsóknir sem gerðar hafa verið í öðrum hestaíþróttum erlendis. Mikilvægt er að þessi mál séu skoðuð innan hestaíþróttarinnar og aukin áhersla verði á að gera sýningar og keppni hestvænni hér á landi. Undanfarin ár er t.d. orðið algengara að sjá hross í keppni með höfuðið þröngvað niður og að kverkinni þannig þau eiga erfitt með að draga andann eðlilega sem er óviðunandi. Það er nauðsynlegt að spornað sé við þessari þróun. Dýraverndarsamband Íslands vill benda á að sýningar og keppni á hestum á aldrei að vera á kostnað velferðar og heilsu þeirra. Hestvænni nálgun að minnka streitu hjá hrossum Því miður hefur skapast sú hefð á bæði hestamótum og reiðhallarsýningum að tónlist sé oft höfð há sem veldur hrossum streitu. Sumir þulir hvetja jafnvel áhorfendur til að fagna á meðan hrossin eru í braut, eins og að þenja bílflautur, klappa eða hrópa. Hross eru flóttadýr sem í eðli sínu forðast hávaða og hafa mun næmari heyrn en manneskjur. Hross upplifa því almennt streitu í slíkum aðstæðum en geta yfirleitt afborið þær séu þau undirbúin fyrir það. Hross geta hins vegar brugðist við t.d. með því að fælast, flýta sér eða missa einbeitingu sem þá leiðir til þess að knapar þurfa að taka fastar í tauminn en annars hefði þurft. Mélin í munni hestsins geta valdið sársauka í samræmi við þrýsting frá hönd knapans, frá óþægindum upp í nístandi sársauka, þar sem þrýstingur kemur frá málmi á tungu og kjálkabein sem er ákaflega viðkvæmt svæði. Með því að mótshaldarar stilli tónlist og fagnaðarlátum áhorfenda í hóf á meðan hestur er í braut má gera aðstæður sýningar- og keppnishrossa hestvænni. Dýraverndarsamband Íslands hvetur Landssamband hestamannafélaga að búa hrossum hestvænni aðstæður í sýningum og keppni með því að hávaða sé stillt í hóf á meðan hestar eru í braut. Stjórn DÍS Comments are closed.
|