Hlekkir á önnur félög tengd dýrahaldi
Hér má finna hlekki á ýmis félög og starfsemi tengt dýrum. Dýraverndarsamband Íslands hvetur alla aðila og hagsmunafélög sem eiga snertifleti við tilvist dýra til að marka sér stefnu og hafa í birtingu áberandi yfirlýsingu um áherslu gagnvart dýravelferð svo hagsmunir dýranna séu í öndvegi.
Hundaræktarfélag Íslands - Markmið HRFÍ er að beita sér fyrir hreinræktun og kynbótum hundakynja sem viðurkennd eru af Alþjóðasambandi hundaræktarfélaga (F.C.I), varðveita, hreinrækta og kynbæta íslenska fjárhundinn, stuðla að réttri meðferð, aðbúnaði og uppeldi hunda og stuðla að góðum samskiptum milli hundeigenda, yfirvalda og almennings.
Dýralæknafélag Íslands - Hlutverk Dýralæknafélags Íslands er að halda utan um hagsmuni dýralækna á Íslandi. DÍ er eitt af aðildarfélögum BHM. Skotveiðifélag Íslands - Tilgangur félagsins er að standa vörð um hagsmuni og réttindi skotveiðimanna á Íslandi. Markmið félagsins er að stuðla að sameiningu skotveiðimanna og áhugamanna um skotveiðar og náttúruvernd og standa vörð um hagsmuni þeirra. Landssamband hestamannafélaga - Auk hefðbundinnar keppni, æfinga og þjálfunar til líkamlegrar heilsuræktar, samanber lögum ÍSÍ, er það í verkahring LH að sinna hagsmunamálum sem tengjast hestaíþróttum svo sem á sviði ræktunarmála, tamninga, samgöngu- og ferðamála, landnýtinga- og umhverfismála. Bændasamtök Íslands - Hlutverk Bændasamtaka Íslands er að vera málsvari bænda og vinna að framförum og hagsæld í landbúnaði. Aðildarfélög Bændasamtakanna: Búnaðarsambönd landsins Beint frá býli Félag eggjaframleiðenda Félag ferðaþjónustubænda Félag hrossabænda Geitfjárræktarfélag Íslands Landssamband kúabænda Landssamtök sauðfjárbænda Landssamtök skógareigenda Samband garðyrkjubænda Samband íslenskra loðdýrabænda Samtök ungra bænda Félag svínabænda VOR - verndun og ræktun Æðarræktunarfélag Íslands |