Stjórn Dýraverndarsambandsins (DÍS) átti fund með Matvælastofnun (MAST) föstudaginn 9. júní. Tilefni fundarins var að ræða nánar niðurstöður úttektarinnar sem Ágúst Ólafur Ágústsson lög- og hagfræðingur vann fyrir DÍS um reynslu af búfjáreftirliti ásamt tillögum til úrbóta og var kynnt á málþingi sem haldið var í Öskju 14. mars s.l. Hér má lesa skýrsluna. Um er að ræða 17 tillögur til úrbóta en áhersla var lögð á að ræða eftirfarandi tillögur á fundinum og viðbrögð MAST við þeim: Tillaga nr. 1 Setja á fót Dýravelferðarstofu Íslands og þannig aðskilja eftirlit með dýravelferð frá starfsemi MAST. Þannig yrði dýravelferð gert hærra undir höfði og klippt yrði á hugsanleg hagsmunatengsl matvælaframleiðslu og dýravelferðar. Tillaga nr. 2 Leyfisskylda allt búfjárhald á Íslandi. Tillaga nr. 5 Auka þarf eftirlitstíðni nýrrar Dýravelferðarstofu, ekki síst óboðað eftirlit með alifuglum og svínum sem er langt um sjaldgæfara en þegar kemur að öðrum dýrategundum. Tillaga nr. 6 Tryggja skilvirka og skjóta verkferla og aukinn málshraða þegar kemur grunur um illa meðferð á dýrum. Á fundinum var einnig farið yfir stöðu mála að Höfða í Borgarbyggð og er málið í ferli. DÍS árétti að staða sem þessi væri óviðunandi og að úrbætur þyldu enga bið. Á nýliðnum aðalfundi DÍS var veitt viðurkenning DÍS, Dýraverndari ársins. Viðurkenningin er veitt fyrir ötult starf í þágu velferðar dýra. Dýraverndari ársins 2022 er Steinunn Árnadóttir. Steinunni hlotnast nafnbótin Dýraverndari ársins 2022 fyrir einstakt hugrekki, seiglu og áræðni í dýravelferðarmálum síðasta árið. Með ötulu starfi sínu og hugrekki vakti Steinunn athygli á vanrækslu dýra í Borgarbyggð sl. haust og í vor og einnig á Vestfjörðum. Hugrekki og áræðni Steinunnar í þeim málum sem hún hefur komið að er einstakt. Seiglan, fylgja málunum eftir og hætta ekki fyrr en dýrum er komið í öruggt skjól, hún er eftirtektarverð. Steinunn birti myndir af hrossum í miklum vanhöldum í Borgarbyggð síðasta sumar. Áður hafði hún reynt í marga mánuði að ná eyrum eftirlitsaðila, Matvælastofnunar (MAST), um ástand dýranna eða frá því snemma sl. vor. Í margar vikur reyndi hún, án árangurs, að fá hrossin sett út á haga til bötunar og bættrar velferðar. Hugrekki Steinunnar að bjarga dýrum í sárri neyð hefur haft smitandi áhrif á almenning „að líta ekki undan þegar vart verður við illa meðferð dýra“. Í málinu í Borgarbyggð í haust var athygli vakin á því hvernig yfirvöld, MAST, lögreglan og matvælaráðuneytið ná ekki utan um málefni er varða dýravelferð. Svo slæleg voru vinnubrögð yfirvalda í málinu að Ríkisendurskoðun ákvað sl. haust að hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti MAST með velferð dýra. Stjórn DÍS óskar Steinunni innilega til hamingju með viðurkenninguna, hún er sannarlega vel að henni komin! Stjórn DÍS átti fund með Matvælastofnun (MAST) mánudaginn 22. maí vegna tveggja dýravelferðarmála sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu og skorts á viðbrögðum frá stofnuninni, sérstaklega hvað varðar að forða dýrum sem eru í neyð. Hér er verið að vísa í slæman aðbúnað sauðfjár á Höfða í Þverárhlíð og slæman aðbúnað hrossa í Arnarfirði. Áhersla var lögð á tafarlausar úrbætur og breytt verklag í eftirliti með velferð dýra. Á fundinum lýsti MAST yfir áhuga á að vinna að gerð fræðsluefnis í samvinnu við DÍS. Áætlaður er fundur í haust vegna þess. Í byrjun júní er áformaður annar fundur með stofnuninni um búfjáreftirlitið og áður framkomnar tillögur DÍS um uppstokkun á dýraeftirlitinu byggðar á ítarlegri úttekt DÍS. Því verður svo fylgt frekar eftir við Matvælaráðuneytið. Þann 19. maí sl. rann út frestur fyrir fullgilda félaga í DÍS að bjóða sig fram til stjórnarsetu í félaginu. Þau sæti sem kosið skal um á komandi aðalfundi þann 25.05 eru sæti formanns og tveggja meðstjórnenda, til tveggja ára. Eftirfarandi framboð bárust til stjórnarsetu í DÍS. Sitjandi stjórnarmenn gáfu á kost á sér að sitja áfram. Framboð í sæti formanns til tveggja ára Linda Karen Gunnarsdóttir Framboð í sæti meðstjórnanda til tveggja ára Anna Berg Samúelsdóttir Framboð í sæti meðstjórnanda til tveggja ára Liselotte Widing Þann 19. maí rann einnig út frestur fyrir fullgilda félaga að senda inn lagabreytingartillögur. Eftirfarandi lagabreytingartillögur bárust frá stjórn DÍS - sjá hér. Við hvetjum félaga til að mæta á aðalfundinn fimmtudaginn 25.05 kl 17 og hafa áhrif á störf DÍS. Stjórn DÍS |