Stjórn DÍS hefur sent neðangreint bréf á Matvælastofnun (MAST) vegna alvarlegs ástands sauðfjár frá bænum Höfða í Þverárhlíð sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum í dag. DÍS hefur rætt aðbúnað og vanrækslu dýranna á þessum stað áður við MAST, með bréfaskriftum og á tveimur fundum með yfirstjórn MAST og með forstjóra. Málið er í ferli hjá stofnuninni og hefur DÍS beðið eftir aðgerðum en ekki er hægt að bíða lengur, það verður að verja velferð dýranna. Efni: Alvarleg vanhirða á sauðfé frá bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarbyggð Dýraverndarsamband Íslands hefur fengið nýjar upplýsingar um áframhaldandi alvarlegt ástand sauðfjár á bænum Höfða í Þverárhlíð. Upplýsingarnar varða fé sem er á útigangi í Norðurárdal í Borgarbyggð. Myndefnið sem fylgdi tilkynningunni sýnir fullorðnar ær í tvöföldum eða þreföldum reifum, sumar haltrandi (mögulega um að ræða fótbrot), kind með júgurbólgu og ómerkt lömb. Ástandið er grafalvarlegt, hér þarf (eins og DÍS hefur áður bent á) að bregðast skjótt við og verja velferð dýranna. Sveitarfélagið stefnir á að smala ágangsfénu og koma því í afrétt (sbr. fréttatilkynning frá sveitarfélaginu), en vert er að benda á að ekki er hægt að sleppa veiku, vanhirtu og ómerktu fé á afrétt, það stenst ekki lög um dýravelferð. MAST þarf að bregðast við vegna þessa ástands sem er með öllu óviðunandi og í ósamræmi við reglugerð nr. 1066/2014 um velferð sauðfjár og geitfjár. Dýr eiga ekki að þjást sbr. lög nr. 55/2013 um velferð dýra. Stjórn DÍS Stjórn DÍS fagnar þeirri ákvörðun matvælaráðherra að ákveða að stöðva veiðar á langreyðum til 31. ágúst nk. Sú ákvörðun er tekin í framhaldi af afdráttarlausri niðurstöðu fagráðs um dýravelferð sem birt var í gær. Niðurstaða ráðsins var að engin mannúðleg leið væri til að tryggja skjótan dauða langreyða við veiðar. Þótt um sé að ræða tímabundna stöðvun veiðanna út sumarið þá má ætla að það dugi til að koma í veg fyrir að nokkur langreyður verði drepin á þessu ári og er það sérstakt fagnaðarefni. DÍS hefur um langt árabil farið fram á að hvalveiðum verði hætt af dýravelferðarsjónarmiðum og er þetta afar mikilvægt skref í þá átt að binda varanlega enda á veiðarnar. Til þess að svo megi verða er þó mikilvægt að úrelt lög um hvalveiðar verði felld úr gildi þannig að ákvörðun um þessar veiðar sé ekki undir hverjum og einum ráðherra komin hverju sinni heldur sé ekki lagalega mögulegt að hefja þær að nýju. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands Deyfing svína með koltvíoxíðgasi er ómannúðleg og grimm. Gasið er ertandi en það myndar sýru í öndunarvegi dýranna sem veldur þeim þjáningu og ótta. Einnig veldur gasið mikilli köfnunartilfinningu og dýrin berjast um í ofboði til að ná andanum þangað til þau á endanum kafna. Þessi meðferð á dýrum er óásættanleg og á ekki að sjást í nútímasamfélagi. Samkvæmt lögum 55/2013 um velferð dýra á aflífun dýra að vera skjót og sársaukalaus. Deyfing svína með koltvíoxíðgasi samræmist þessu ákvæði ekki þar sem dýrin há í raun dauðastríð. Nauðsynlegt er að fundnar verði mannúðlegri lausnir við deyfingu svína fyrir aflífun. Dýraverndarsamband Íslands fer fram á að deyfing svína með koltvíoxíðgasi verði stöðvuð og bönnuð með lögum. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands Ársskýrsla stjórnar DÍS 2022-2023 Í skýrslunni er farið yfir verkefni stjórnar Dýraverndarsambandsins frá ágúst 2022 til maí 2023. Verkefnin hafa verið bæði viðamikil og fjölbreytt og ljóst er að það er mikil þörf fyrir öfluga rödd dýravelferðar í samfélaginu. Í lokin er umfjöllun um Dýraverndara ársins 2022. Skýrslan var flutt á aðalfundi félagsins þann 25. maí síðastliðinn. |