Ríkisendurskoðun hefur birt skýrslu um eftirlit Matvælastofnunar (MAST) með velferð búfjár. Niðurstaða skýrslunnar er í grundvallaratriðum í takti við þá úttekt sem DÍS lét vinna veturinn 2022-2023 og kynnt var í mars sl., ,,Bætt dýravelferð’’. Fram kemur í skýrslu DÍS að gefnir séu ítrekaðir frestir til betrumbóta og dýrin því látin þjást sem er andstætt lögum um velferð dýra. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir eftirfarandi: ,,MAST þarf að leggja aukna áherslu á að stjórnsýsluleg framkvæmd verði ekki á kostnað velferðar dýra.” Að mati DÍS er bráðnauðsynlegt að fjölga dýraeftirlitsmönnum og að eftirlitstíðni verði aukin til að eftirlitið virki á fyrirbyggjandi hátt og veiti aðhald. Of langur tími líður milli eftirlitsheimsókna almennt í búfjárhaldi og auka þarf sömuleiðis eftirlit með þauleldi. Í skýrslu DÍS er jafnframt bent á að málshraði þarf að vera mun meiri og dýrin eigi að njóta vafans sem er sama niðurstaða og í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Að mati DÍS þurfi að færa eftirlit með velferð dýra frá MAST og koma eftirlitinu fyrir í sérstakri Dýravelferðarstofu, til að styrkja dýravelferðaráherslur og koma í veg fyrir þá hagsmunaárekstra sem felast í því að hafa dýravelferð og matvælaeftirlit undir sama hatti. Það sést einna best á því að halaklippingar á grísum eru enn framkvæmdar hér á landi í stórum stíl af hálfu svínabænda og MAST upplýst um það - þó slíkt sé bannað með lögum - en stofnunin bregst ekki við. Það er von DÍS að þessi úttekt Ríkisendurskoðunar verði, ásamt með úttekt DÍS fyrr á árinu, til þess að nauðsynlegar breytingar verði gerðar í þágu dýravelferðar. Stjórn DÍS Dýraverndarsamband Íslands, Dýrfinna, Dýrahjálp Íslands, Kattholt, Villikettir og Villikanínur fara fram á að dýrum verði bjargað í Grindavík og nágrenni í dag. Ljóst er að enn er mikill fjöldi dýra á svæðinu sem er á neyðarstigi. Unnin hefur verið aðgerðaráætlun af hálfu Dýrfinnu, Dýrahjálpar Íslands, Villikatta og Kattholts þar sem staðsetning dýra sem eru á svæðinu hefur verið kortlögð. Sjálfboðaliðar eru nú tilbúnir við Grindavík, með bæði mannskap, bíla og búr til að sækja dýrin sem eru í neyð. Þegar eru dýr orðin matar- og vatnslaus á svæðinu og þarf að bregðast við strax. Dýraverndarfélögin óska eftir tafarlausum stuðningi yfirvalda við að bjarga dýrum í Grindavík. Flytja þarf ÖLL dýr burt af svæðinu. Virðingarfyllst, Dýrfinna Dýrahjálp Íslands Dýraverndarsamband Íslands Kattholt Villikanínur Villikettir Dýraverndarsambandið (DÍS) hvetur Grindvíkinga til að fara varlega í þeim hættulegu aðstæðum sem hafa skapast. DÍS vill jafnframt minna á gæludýrin stór sem smá og þann búfénað sem er á svæðinu, þau þurfa líka vernd. Fjöldahjálparstöðvar ættu einnig að taka á móti dýrum og einstaklingar hafa boðið fram aðstoð varðandi að hýsa dýr tímabundið - sjá nánar undir Hundasamfélagið á Facebook. DÍS áréttar að það þarf að flytja ÖLL dýr burt af svæðinu. Stjórn DÍS Dýraverndarsamband Íslands hvetur fjáreigendur á landinu eindregið til að fá dýralækna til geldinga á hrútum en framkvæma ekki slíkar aðgerðir sjálfir. Gelding er gríðarlegt inngrip inn í líf og heilsu hrúta og slíkar sársaukafullar aðgerðir eiga eingöngu að vera í höndum dýralækna lögum samkvæmt. Geldingar eiga aldrei, undir neinum kringumstæðum, að vera framkvæmdar af ófaglærðum aðilum né án deyfingar og verkjastillandi lyfja. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands --------------------------------------------------------- DÍS átti í samskiptum við Matvælastofnun vegna ábendingar um að að því miður viðgangist það enn að hrútar séu geltir án aðkomu dýralækna og að það sé jafnvel algengt. Þessi ábending um að bændur séu gelda hrúta hefur að hluta til verið staðfest af fagaðilum innan stéttar dýralækna með þeim orðum, “... við vitum hvert við förum í sveitinni til að gelda hrúta, en það eru ekki margir staðir...”. Í svari frá MAST segir jafnframt: ,,Þekkt er að einkum á þeim svæðum á landinu þar sem langt er í þjónustu næsta dýralæknis að bændur hafa verið að gelda sjálfir.''. Hér má finna fyrirspurn DÍS til MAST: Fyrirspurn vegna ólöglegra geldinga sauðfjárbænda á hrútum Hér má finna svör MAST: Svör við fyrirspurn DÍS vegna ólöglegra geldinga sauðfjárbænda á hrútum Stjórn DÍS |