Dýraverndarsamband Íslands hefur nú fengið nýja og betri vefsíðu. Vefsíðan er enn í vinnslu og mun frekara efni birtast innan tíðar, en ætlunin er að hafa vefsíðuna virka og setja reglulega inn nýtt efni og fréttir. Fréttabréfið Dýraverndarinn kemur nú út á tveggja mánaða fresti. Allir félagar fá senda tilkynningu með vefpósti þegar Dýraverndarinn hefur komið út, en hann er á rafrænu formi um sinn. Fyrsta tölublaðið kom út í dag og er vefslóð hér til hliðar þar sem lesa má blaðið. Comments are closed.
|