DÍS
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Ársskýrslur og aðalfundir
    • Skrifstofa DÍS
  • Starfsemi DÍS
    • Almenn stefna og nálgun DÍS
    • Ályktanir og áskoranir
    • Umsagnir DÍS
  • Fróðleikur
    • Algengar spurningar
    • Dýraverndarinn
    • Ýmis fróðleikur
    • DÍS í fjölmiðlum
  • Önnur starfsemi tengd dýrum
    • Félög tengd dýravelferð
    • Félög tengd dýrahaldi
    • Stofnanir
    • Lög og reglugerðir
    • Dýr og dýravelferð á samfélagsmiðlum
  • Styðja við dýravernd
    • Gerast félagi
    • Gerast styrktarfélagi í DÍS
    • Styrkja félagið beint
    • Að tilkynna illa meðferð
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Ársskýrslur og aðalfundir
    • Skrifstofa DÍS
  • Starfsemi DÍS
    • Almenn stefna og nálgun DÍS
    • Ályktanir og áskoranir
    • Umsagnir DÍS
  • Fróðleikur
    • Algengar spurningar
    • Dýraverndarinn
    • Ýmis fróðleikur
    • DÍS í fjölmiðlum
  • Önnur starfsemi tengd dýrum
    • Félög tengd dýravelferð
    • Félög tengd dýrahaldi
    • Stofnanir
    • Lög og reglugerðir
    • Dýr og dýravelferð á samfélagsmiðlum
  • Styðja við dýravernd
    • Gerast félagi
    • Gerast styrktarfélagi í DÍS
    • Styrkja félagið beint
    • Að tilkynna illa meðferð

Málþing um gæludýr hjá Dýraverndarsambandi Íslands

26/1/2017

 
Picture

​DÍS verður með málþing um gæludýr mánudaginn 30. janúar kl. 17-19. Við erum að Grensásvegi 12A, sem er bakhús beint fyrir aftan Grensásveg 12.
Allir velkomnir.

Dagskrá:

Dýraverndari ársins 2016
Félagið Dýrahjálp Íslands veitir viðtöku viðurkenningunni Dýraverndari ársins 2016, en félagið hefur unnið frábært starf í þágu dýra í mörg ár og breytt sýn almennings á málefnum ,,eldri" dýra. Valgerður Valgeirsdóttir talsmaður félagsins kemur og segir okkur frá því.

Einnig veitir DÍS tveim félögum fjárstyrk í þágu dýravelferðar, en það eru félögin Project Henry sem vinnur að verndun fugla á Læknum í Hafnarfirði og Félag ábyrgra hundaeigenda sem vinnur að samfélagsmálum hundaeigenda á Íslandi.

Jón Ásgeir Kalmansson nýdoktor í siðfræði kemur og skoðar með okkur siðferðishliðina á gæludýrahaldi. Hver á hvern – eigum við dýrin, eða eiga þau okkur? Dýr eru skilgreind sem skyni gæddar verur samkvæmt íslenskum lögum og þau hafa sínar þarfir og eðli. Er rétt eða rangt að halda gæludýr og hverjar eru siðferðilegar skyldur okkar gagnvart dýrunum?

Þóra Jónasdóttir sérgreinadýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Mast kemur og segir okkur af hverju það er andsætt dýravelferð að halda hunda daga langa í litlum ferðabúrum – en bann við því tók gildi með nýrri reglugerð um velferð gæludýra. Það er brýnt að kynna þetta fyrir hundaeigendum á Íslandi í dag enda útbreiddur misskilningur að hundar vilji dvelja í slíkum búrum. Hér skiptir umhverfisþjálfun mjög miklu máli.

Hallgerður Hauksdóttir formaður DÍS greinir frá niðurstöðu starfshóps á vegum stjórnar Strætó bs., þar sem unnin var greining á hvort leyfa ætti að farið væri með gæludýr í strætó á Íslandi. Fulltrúar í hópnum voru frá farþegaþjónustu, vagnstjórum og þvottastöð Strætó, Hollvinasamtökum Strætó, Kattavinafélagi Íslands og Hundaræktarfélagi Íslands, frá Astma- og ofnæmisfélagi Íslands, Dýraverndarsambandi Íslands og loks frá Félagi ábyrgra hundaeigenda. Greiningarvinnan leiddi margt athyglisvert í ljós.

Sif Traustadóttir stjórnarmaður DÍS, kynnir með rafrænum hætti hvernig hún hefur upplifað aðgengi hunda á ferðalagi sínu um Evrópu með hundinn Sunnu. 

Komdu og taktu þátt í samtali um gæludýr í íslensku samfélagi. Umræður verða eftir kaffihlé.

Allir velkomnir og heitt á könnunni.

Stjórn DÍS



Comments are closed.
    Picture

    Að tilkynna illa meðferð 
    °  °  °  °  °  °  ° 

    Tímaritið
    Dýraverndarinn 

    Picture
    Hlekkir
    Dýraauðkenni
    Dýrahjálp Íslands
    Dýralæknafélag Íslands
    Kattavinafélag Íslands
    Kisukot
    Matvælastofnun
    Munnur hestsins
    Umhverfisstofnun
    Villikettir

    ​dyravernd@dyravernd.is


    S: 552-3044

    RSS Feed

DÝRAVERNDARSAMBAND ÍSLANDS   |   GRENSÁSVEGI 8, 4. HÆÐ (gengið inn að aftan),108 REYKJAVÍK   |   SÍMI  552-3044   |   DYRAVERND@DYRAVERND.IS