Tímaritið Dýraverndarinn
Félagið var stofnað árið 1914 og tímarit þess, Dýraverndarinn kom fyrst út árið 1915.
Tímaritið var gefið út allt til ársins 1983, en þá varð hlé. Árið 2012 kom tímaritið aftur út í tveimur tölublöðum, en þá aðeins í vefútgáfu. Það hefur komið út þrisvar sinnum síðan í prentaðri útgáfu en slík útgáfa er afar kostnaðarsöm og því viljum við einnig safna hér inn greinum og efni tengt blaðinu svo fólk fái notið þess. Öll dýr koma Dýraverndaranum við, jafnt villt dýr, húsdýr sem og gæludýr. Velferð dýra er mikilvægt mál. |