Um Dýraverndarsamband Íslands
Dýraverndarsamband Íslands er byggt á grundvelli fyrsta dýraverndarfélags sem stofnað var hér á landi árið 1914. Það er sameiginlegur vettvangur þeirra sem vilja stuðla að velferð dýra, villtra og taminna, búfjár og gæludýra. Það leggur áherslu á miðlun upplýsinga og fræðslu en lætur sig reyndar varða allt það sem snertir bætta meðferð dýra og velferð þeirra. Dýraverndarsamband Íslands eru frjáls og óháð samtök (NGO).
Dýraverndarsambandið á fulltrúa í Dýraverndarráði, er aðili að Norræna dýraverndarráðinu (Nordisk Dyrebeskyttelsesråd) og að Heimssambandi til verndunar dýrum (World Society for the Protection of Animals (WSPA)). Sambandið er einnig aðili að Landvernd.
Dýraverndarsamband Íslands vill stuðla að upplýstum umræðum á Íslandi um velferð dýra og eru allar ábendingar og upplýsingar mjög vel þegnar. Einstökum málum verður sinnt eftir föngum svo sem tími og aðstæður leyfa.