Nú hefur verið sent út fundarboð til allra skráðra félaga í DÍS með tölvupósti.
Hafi fundarboð ekki borist einhverjum félagsmönnum eru þeir beðnir um að senda gilt tölvupóstfang á dyravernd@dyravernd.is. Efni fundarboðs: Kæri félagi í Dýraverndarsambandi Íslands Aðalfundur félagsins verður haldinn þann 3. mai næstkomandi kl. 13-15, í húsakynnum félagsins að Grensásvegi 12 A. Dagskrá aðalfundar: 1. Fundur settur 2. Fundarstjóri valinn 3. Kynning framboða til stjórnar 4. Ársskýrsla 5. Félagsgjöld 6. Lagabreytingar 7. Kosning stjórnar 8. Önnur mál Varðandi stjórnarkjör: Að þessu sinni verður kosið um formann til tveggja ára, ritara til eins árs, gjaldkera til eins árs og tvo meðstjórnendur, annan til eins árs og hinn til tveggja ára. Eftirtaldir stjórnarmenn gefa kost á sér áfram til stjórnarsetu: Sif Traustadóttir, Hallgerður Hauksdóttir, Róbert Helgason og Anna Berg Samúelsdóttir. Framboð til stjórnar og tillögur að lagabreytingum þurfa að berast fyrir 25. apríl og verður hvort tveggja kynnt nánar á heimasíðu félagsins mánudaginn 28. apríl. Þeir sem bjóða sig fram til stjórnarsetu eru beðnir að senda kynningartexta til skrifstofu félagsins ásamt framboði sínu (ath. mest 150 orð og helst senda mynd). Rétt til setu á aðalfundi DÍS hafa allir fullgildir félagar sem greitt hafa árgjald fyrir síðasta ár. Félagar sem hafa gengið í DÍS á þessu almanaksári geta greitt félagsgjald þessa árs með því að hafa samband við skrifstofu félagsins, dyravernd@dyravernd.is. Skrifstofan er einnig opin á mánudögum frá kl. 13-18, sími 5523044. Hægt verður að staðgreiða félagsgjald á fundinum, en mögulegt er að skrá inn eða leiðrétta skráningu félaga þar til allt að viku fyrir aðalfund eða þar til öll framboð hafa komið fram. Stjórn DÍS Comments are closed.
|