Fréttir
31.10.2009
Málþing um ábyrgt búfjárhald
Málþing Dýraverndarsambands Íslands um ábyrgt búfjárhald verður haldið á Hótel Sögu við Hagatorg í Reykjavík, laugardag 7.nóvember 2009 n.k. kl 10.30 - 14.00, nánar tiltekið í Harvard II sal á 2.hæð, gengið inn um norðurinngang gegnt Þjóðarbókhlöðunni.
Dagskráin er eftirfarandi:
1) Kl 10.30 - Málþingið sett og efninu fylgt úr hlaði með stuttri kynningu á eftirliti með búfjárhaldi í landinu : Ólafur R. Dýrmundsson búvísindamaður.
2) Kl 10.50 - Yfirstandandi endurskoðun dýraverndarlaga : Sif Traustadóttir dýralæknir.
3) Kl 11.10 - Aðbúnaður kúa í lífrænum búskap - viðhorf bónda : Kristján Oddsson bóndi,Neðra- Hálsi í Kjós.
4) Kl 11.30 - Viðhorf neytenda til meðferðar á búfé : Eyrún Ýr Hildardóttir og Klara Helgadóttir háskólanemar.
Stuttar spurningar og svör á eftir hverju erindi.
5) Kl 12.00 - Hádegishressing
6) Kl 12.30 - Pallborðsumræður. Við pallborðið verða ,auk frummælenda, þær Margrétar Björk Sigurðardóttur og Linda Karen Gunnarsdóttur háskólanemar ( í stjórn Dýraverndarsambands Íslands).
7) Kl 14.00 - Málþinginu slitið.
Allir sem láta sér annt um velferð búfjár eru velkomnir.
Stjórn Dýraverndarsambands Íslands
( dyravernd@dyravernd.is)