Fréttir

15.5.2009

Kýrnar á beit



Á Norðurlöndum, einkum þó í Danmörku og Svíþjóð, er mikið fjallað um þá óheillaþróun að mjólkurframleiðendur hafa í vaxandi mæli hætt að nýta sumarbeit fyrir kýrnar.  Þetta hefur fylgt stækkun búanna, sérstaklega notkun sjálfvirkra mjaltatækja(mjaltara,mjaltaþjóna ,róbóta).  Þótt kýrnar séu í lausagöngufjósum og fái einhverja útivist í gerðum við fjósin er ljóst að velferð þeirra er skert verulega.  Dönsku dýraverndarsamtökin ( Dyrenes beskyttelse) hafa verið með undirskriftasöfnun þar sem þess er krafist að allar mjólkurkýr fái að ganga til beitar á sumrin,slíkt verði tryggt með skýrri löggjöf.  Sænsku dýraverndarsamtökin (Djurskyddet) eru sama sinnis og það er einnig Dýraverndarsamband Íslands. 

Hér er hætta á svipaðri þróun ef ekki verður gripið í taumana án tafar með endurskoðun á 5.gr. reglugerðar nr,  43... um aðbúnað nautgripa o.fl. Hefur málinu verið hreyft í Dýraverndarráði og mun Matvælastofnun vera farin að kanna stöðuna hér á landi.  Á Fræðaþingi landbúnaðarins  2009 kom m.a. fram í erindi um útivist kúa og notkun mjaltaþjóna að um síðustu áramót hafi verið yfir 100 slíkir í notkun á landinu og færi um fjórðungur mjólkurframleiðslunnar á gegn um slík mjaltakerfi.  Þá var greint frá því að með réttum tæknibúnaði,góðri skipulagningu beitar og umfram allt,vilja til þess að leyfa kúnum sem best að njóta eðlilegs atferlis,ættu allar kýr að geta haldið áfram að bíta gras á sumrin.  Rétt er að benda á að á lífrænt vottuðum kúabúum ,hér og erlendis,eiga mjólkurkýr ætíð að fara á beit og reyndar fara út allt árið nema óveður hamli,sem sagt ekki aðeins útivist í minnst 8 vikur,sbr. 5.gr. áðurnefndrar aðbúnaðarreglugerðar nr. 438/2002 .

Summary in English

Dairy cows on grass

 Animal walfare bodies in the Nordic Countries,especially in Denmark and Sweden,and more recently in Iceland,have been warning against the negative development of keeping dairy cows off pasture in summer.  This trend has been associated with increased herd size and the use of automatic milking robots.  Agricultural scientists have pointed out that cows in such herds can still be grazed in summer provided this is allowed for in the construction of buildings,yards,gates and access to the grazing paddocks.  Thus regulations applying to conventional dairy farms need to be revised while on certified organic holdings outdoor access for dairy cows is stipulated throughout the year,weather permitting, and thus summer-grazing can be guaranteed.

Skrifað 15.5.2009 kl. 19:40 af Ólafur Dýrmundsson

Bein slóð á færslu

Til baka

Fara á upphafssíðu

Dýraverndarsamband Íslands - sími og fax: 5523044 - dyravernd@dyravernd.is