Fréttir
13.2.2009
Fréttatilkynning vegna hvalveiðiáforma
Dýraverndarsamband Íslands skorar á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að nema úr gildi heimild ríkisstjórnar Geirs Haarde til stórfelldra hvalveiða í atvinnuskyni.
Sambandið bendir á að þær aðferðir sem beitt er við hvalveiðar eru ósamrýmanlegar nútímasjónarmiðum um velferð dýra og telur að best sátt náist um nýtingu þessarar auðlindar með vel skipulagðri hvalaskoðun þar sem virðing er borin fyrir dýrunum og umhverfi þeirra.
Abstract in English: The Animal Protection Society of Iceland urges the Government of Jóhanna Sigurðardóttir to invalidate the decision of the Government of Geir Haarde to allow large scale ,professional whaling.The Society points out that the whaling methods employed cannot be reconciled with modern animal welfare criteria and considers that well planned whale-watching is the most desirable and sustainable way of utilizing this natural resource.