Fréttir

9.1.2009

Fréttatilkynning vegna vanhugsaðrar tillögu um sleppingu hreindýra á Reykjanesskaga




Nýlega var greint í fjölmiðlum frá þeirri tillögu Ferðamálasamtaka Suðurnesja að sleppa hjörð villtra hreindýra í Reykjanesfólkvang.  Dýraverndarsamband Íslands varar eindregið við slíkum áformum enda samræmist slíkt ekki dýravelferðarsjónarmiðum. Reykjanesskaginn hefur ekki uppá að bjóða kjörlendi fyrir hreindýr,hvorki hvað beitilönd varðar né loftslagsskilyrði þar sem þetta er eitt votviðrasamasta svæði landsins.  Gera má ráð fyrir að hreindýrin myndu leita niður á láglendi,a.m.k.hluta árs,svo sem í skóglendi,allt til Heiðmerkur,og niður að sjó,þar með yfir hina fjölförnu Reykjanesbraut,og lenda í mikilli slysahættu.  Þau gætu reyndar farið víðar hindrunarlaust  og með þeim þyrfti því að vera stöðugt eftirlit sem viðkomandi sveitarfélög þyrftu sennilega að kosta.  Auk þess þyrfti að gera ráð fyrir fóðrun í harðindum og ráðstafanir yrði að gera til þess að dýrin yrðu ekki sjálf fyrir slysum á vegunum eða gætu valdið slysum á fólki við ákeyrslur.  Ýmis önnur sjónarmið varða framangreinda tillögu en við teljum að velferð dýranna skipti megin máli og teljum fráleitt að hún verði tryggð á Reykjanesskaga né annars staðar í Landnámi Ingólfs Arnarsonar.

                                                                                                  Dýraverndarsamband Íslands


Abstract in English :  In a declaration,recently published in newspapers ,the Animal Protection Society of Iceland warns against a proposal to introduce reindeer into the Reykjanes Region close to the most densely populated area of the country. This high rainfall area is the least suitable part of Iceland for reindeer ,pastures far from being ideal for their welfare in all seasons and  impossible to avoid accidents on busy roads such as between Keflavík International Airport and Reykjavík City.At present reindeer are only found in East Iceland.They were imported from Norway late in the 18th century and have never been domesticated.

Skrifað 9.1.2009 kl. 21:40 af Ólafur Dýrmundsson

Bein slóð á færslu

Til baka

Fara á upphafssíðu

Dýraverndarsamband Íslands - sími og fax: 5523044 - dyravernd@dyravernd.is