Fréttir

31.12.2008

Fréttatilkynning til fjölmiðla 29.desember 2008 vegna hræðslu dýra við flugelda og sprengingar

Nú þegar áramótin eru framundan vill Dýraverndarsamband Íslands vekja athygli á þeirri ógn sem dýrum stafar af flugeldum og sprengingum með viðeigandi hávaða og óhjákvæmilegri mengun andrúmsloftsins.  Flest dýr hræðast slíkan ljósagang,hávaða og lykt,hvort semþau eru gæludýr eða búfé og trúlega einnig villt dýr.  Þetta ætti fólk að hafa í huga og gera allt sem það getur til að draga úr því álagi sem dýrin verða fyrir.Vitað er að t.d. hundar og kettir sýna greinileg hræðsluviðbrögð,leita skjóls eða fara í felur og hafa jafnvel týnst.  Á seinni árum hefur verið töluvert um að hross á útigangi hafi fælst eða hreinlega tryllst,hlaupið um langan veg og hafa jafnvel lent í sjálfheldu eða hrapað í klettum. Dýraeigendur eru hvattir til að hafa sérstaka gát á dýrum sínum,einkum á gamlárskvöld,hafa ljós í húsum til þess að minna beri á leiftrunum,jafnvel loka gluggum en sjá samt til þess að loftræsting sé góð og forðast eftir megni að skjóta upp flugeldum og sprengja í næsta nágrenni við dýr,hvort sem þau eru inni eða úti.  Munum að dýrin eru skini gæddar tilfinningaverur eins og við.

Skrifað 31.12.2008 kl. 15:02 af Ólafur Dýrmundsson

Bein slóð á færslu

Til baka

Fara á upphafssíðu

Dýraverndarsamband Íslands - sími og fax: 5523044 - dyravernd@dyravernd.is