Fréttir
20.10.2008
Málþing um ábyrgt gæludýrahald 8.nóvember
Ungir sem aldnir hafa yndi og ánægju af gæludýrahaldi af ýmsu tagi. Stunduð er verslun með slík dýr, opinbert eftirlit er á vegum bæði ríkis og sveitarfélaga og margvísleg félagsleg starfsemi er í gangi meðal áhugafólks. En gæludýrahald á sér líka sínar skuggahliðar því að meðferð og umönnun er ekki alltaf til sóma. Of oft þarf að koma dýrunum til hjálpar í orðsins fyllstu merkingu. Dýraverndarsamband Íslands sem á rætur að rekja til ársins 1914 er meðal þeirra sem koma við sögu og vill með málþingi um ábyrgt gæludýrahald stuðla að umræðum og dreifingu upplýsinga og fræðslu til að tryggja sem besta meðferð gæludýra, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Á næsta ári er svo áformað að efna til málþings um ábyrgt búfjárhald.
Málþing um ábyrgt gæludýrahald verður haldið á Háskólatorgi við Suðurgötu í Reykjavík (nýju byggingunni), laugardag 8.nóvember n.k. kl 11-14 og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í dyravernd@dyravernd.is Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta tilkynnt þátttöku í símsvara í síma 552-3044.
Flutt verða nokkur framsöguerindi, tími verður fyrir stuttar fyrirspurnir og ábendingar úr sal að loknu hverju erindi og í lokin verða pallborðsumræður.
Stjórn dýraverndarsambandsins býður ykkur velkomin.