Fréttir

13.9.2008

Ársfundur Norræna dýraverndarráðsins



Ársfundur Norræna dýraverndarráðsins var haldinn í Helsingfors í Finnlandi dagana 22.-23. ágúst s.l. Fulltrúar Dýraverndarsambands Íslands voru þau Linda Karen Gunnarsdóttir og Ólafur R. Dýrmundsson og lögðu þau fram skýrslu um starfsemina síðan síðasti fundur var haldinn á Öland í Svíþjóð í lok ágúst 2007 en Linda Karen var fulltrúi okkar þar. Norræna dýraverndarráðið lætur sig varða velferð allra dýra en dýraverndarsamtökin í Danmörku eru hin stærstu á Norðurlöndum. Engin formleg félög um verndun dýra starfa í Færeyjum en á Grænlandi  starfar félag sem sinnir eingöngu vernd hunda og katta. Starfsemin í aðildarlöndunum er margvísleg og höfum við tvímælalaust gagn af þáttöku í ráðinu. Sum vandamálin eru keimlík í öllum löndunum, svo sem vanræksla hunda, katta og annarra gæludýra, en hin löndin eru farin að sinna meira velferð búfjár en hér hefur tíðkast og þá einkum loðdýrum ,alifuglum og svínum. 

Á meðal nýlegra viðfangsefna  er herferð í Danmörku til að stuðla að því að mjólkurkýr fái að njóta beitar í sumarhögum en séu ekki hafðar á stöðugri innigjöf . Þannig eru þær sviptar útivist að mestu eða öllu leyti vegna breytinga  yfir í  sjálfvirka mjaltatækni (mjaltarar/mjaltaþjónar/róbótar). Í öllum hinum aðildarlöndunum eru áhyggjur vegna þessarar þróunar. Í Finnlandi og Noregi er m.a. unnið að fræðslu barna og unglinga um ábyrgt gæludýrahald og almenna dýravernd og í Svíþjóð, sem og reyndar víðar á Norðurlöndum, er viðbúnaður í gangi vegna slátrunaraðferða  þeirra sem kenndar eru við Kosher og Hal-al og brjóta í bága við nútíma aflífun búfjár á Vesturlöndum. Fulltrúar Svía greindu frá því  að þar í landi væri hænsnahald í búrum nær aflagt og hafi barátta dýraverndarsamtaka þar skipt miklu máli svo og viðhorf neytenda.




Fjallað var um sársaukalausan beislabúnað á fundinum sem vakti athygli fundarmanna

Meðferð hrossa eru alltaf til umfjöllunar í öllum löndunum og á fundinum lagði Linda Karen orð í belg með umfjöllun um mélalausan beislisbúnað . Ólafur og fulltrúi Norðmanna greindu frá stöðunni í hvalveiðimálum þjóðanna en markaðssetning afurðanna virðist mjög takmörkuð og hagsmunir ferðaþjónustu  orðnir  mun veigameiri en hvalveiðihagsmunirnir. Norðmenn fá nýja dýraverndarlöggjöf á næsta ári og og verðu hún kennd við "dýravelferð" en ekki "dýravernd" og ættum við m.a. að huga að slíku í sambandi við endurskoðun dýraverndarlöggjafarinnar sem hófst hér fyrr á þessu ári. Arne Stevns (Danmörku) lauk þriggja ára stjórnarsetu sem forseti  Norræna dýraverndarráðsins og var Ólafur R. Dýrmundsson kjörinn í hans stað til næstu þriggja ára.  Næstu fundur ráðsins verður haldinn í Reykjavík um miðjan ágúst 2009.


Skrifað 13.9.2008 kl. 21:11 af Ólafur Dýrmundsson

Bein slóð á færslu

Til baka

Fara á upphafssíðu

Dýraverndarsamband Íslands - sími og fax: 5523044 - dyravernd@dyravernd.is