Fréttir
13.8.2008
Dýraverndarlögin í endurskoðun
Vorið 2008 skipaði umhverfisráðherra nefnd til að endurskoða dýraverndarlögin. DÍ fagnar þeirri ákvörðun enda tími til kominn að huga að ýmsu í löggjöfinni sem verða má til að bæta stöðu og velferð dýra í nútímasamfélagi. DÍ er að koma á framfæri við nefndina ýmsum ábendingum og velkomið er að senda okkur tillögur og ábendingar í dyravernd@dyravernd.is sem við getum komið til nefndarinnar. Reikna má með að í kjölfarið fylgi endurskoðun á lögum um búfjárhald og ýmsum reglugerðum um dýrahald.