Fréttir

13.8.2008

Málþing í haust




DÍ hyggst halda málþing í Reykjavík í haust um velferð gæludýra. Lögð verður
áhersla á efnið "ábyrgt gæludýrahald" því að stöðugt berast kvartanir og ábendingar um vanrækslu, harðýðgi og lélega meðferð gæludýra. Þetta mál varðar ekki aðeins gæludýraeigendur heldur einnig þá sem selja, gefa eða dreifa dýrum því að dýrahaldi fylgir mikil ábyrgð sem sumir geta ekki eða vilja ekki axla. DÍ telur að umræða og fræðsla um þessu mál sé til bóta og mega þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í væntanlegu málþingi gjarnan láta okkur vita í dyravernd@dyravernd.is

Skrifað 13.8.2008 kl. 22:03 af Ólafur Dýrmundsson

Bein slóð á færslu

Til baka

Fara á upphafssíðu

Dýraverndarsamband Íslands - sími og fax: 5523044 - dyravernd@dyravernd.is